04.05.1921
Neðri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í C-deild Alþingistíðinda. (2973)
39. mál, lærði skólinn í Reykjavík
Frsm. minni hl. (Þorsteinn Jónsson):
Háttv. frsm. meiri hl. (M. J. )hefir nú farið nokkrum orðum um þau atriði, sem valdið hafa ágreiningi milli meiri og minni hl. mentamálanefndar í þessu máli.
Jeg vil fyrst minnast á það, sem hann sagði, að við minni hl. menn hefðum ekki — eða annar okkar — myndal okkur neina skoðun um það, hvernig skólakerfi landsins verði samrýmt. Jeg þykist hafa myndað mjer skoðun um þetta. Það er rjett tekið fram, að minni hl. er ekki sammála um þetta, og það, sem jeg segi um það, tala jeg frá eigin brjósti.
Vitanlega stend jeg ver að vígi en samnefndarmenn mínir, þar sem jeg hefi ekki gengið í skóla þann, er hjer um ræðir, en þeir eru allir útskrifaðir úr skóla þessum.
Það eru þrjú höfuðatriði, sem meiri og minni hl. mentamálanefndar greinir aðallega á um í þessu máli.
1. Hvort málið eigi að ganga fram á þessu þingi.
2. Hvort skólinn skuli vera skiftur eða óskiftur.
3. Hvort aukið skuli latínunám við skólann eða eigi.
Eins og sjá má af nál. minni hl., þá vill hann eigi, að þetta þing afgreiði málið. Enda skil jeg ekki, hvers vegna meiri hl. gerir það að ágreiningsefni. Það er þó öllum ljóst, að þetta er svo mikilsvarðandi mál, að það má ekki afgreiða það í flaustri. Jeg þykist að vísu vita, að hv. meiri hl. muni halda því fram, að málið sje mjög vel undirbúið, þar sem milliþinganefnd hefir fjallað um það, síðan stjórnin og svo þing nefnd. Jeg játa, að undirbúningur málsins sje þegar orðinn nokkur, en samt ekki nægilegur. Það eru fá mál, sem eru vandasamari meðferðar en skólamálin, og fá mál, sem meiri ágreiningur er um. Enda er það eðlilegt, að svo sje. Gamli málshátturinn segir: „Varðar mest, að allra orða undirstaða sje rjettleg fundin.“ Skólamálin eru einn af aðalþáttum uppeldismálanna. Undir uppeldi kynslóðanna er að miklu komin framtíð þeirra. Þjóðfjelögin hafa skólana til að gera unglingana að mentuðum og góðum borgurum, til þess að gera þá færari um að inna af höndum hverskonar störf fyrir þjóðfjelagið. Undir skólunum er að nokkru komin framtíð og heill hvers þjóðfjelags. Af þessum ástæðum er það eðlilegt, að skólamálin sjeu ágreiningsmál. Öll mikilsverð mál hljóta að verða ágreiningsmál. Allar menningarþjóðir verja miklu fje til skólanna. Við viljum telja okkur í tölu þeirra; enda leggur íslenska þjóðin ekki lítið fje til skólahalds. En jafnframt og þjóðin ver miklu fje til skólanna, þá eru gerðar miklar kröfur til þeirra um góðan árangur af skólavist nemenda. þær kröfur eru sjálfsagðar, en oft fer svo, að menn ætlast til meira af skólunum en sanngjarnt er að krefjast. Jeg get ímyndað mjer, að eitthvað af þeirri óánægju, sem er með okkar mentaskóla, stafi af ósanngjörnum kröfum, en auðvitað eitthvað af göllum, sem bæta má. En þeir gallar eru vitanlega ekki allir reglugerð skólans að kenna. Reglugerðir skóla eru nokkurskonar rammi. Það varðar nokkru, hvernig ramminn er, en meiru þó, hvernig hann er útfyltur.
Þjóð og þing eru víst sammála um, að rjett hafi verið að taka til rannsóknar öll skólamál landsins. Þingið 1919 afgreiddi þingályktunartillögu til stjórnarinnar, þar sem það skoraði á hana að láta slíka rannsókn fara fram. Þessi þál.till. var ekki orðuð eins og jeg vildi; áleit jeg heppilegra, að hún væri öðruvísi orðuð. Hún var samin af hv. þm. Dala. (B. J.) og lituð því af hans skoðunum. Stjórnin brást vel við þessari áskorun þingsins og skipaði nefnd til að framkvæma þessa rannsókn. Þó skipaði hún ekki nefndina fyr en 12. mars 1920.
Þeir menn, sem sæti eiga í nefndinni, eru báðir prófessorar við háskólann og því hlaðnir öðrum störfum, svo starf þeirra í þessari nefnd hlýtur að vera aukastarf. Þeir hafa nú starfað aðeins nálega eitt ár, en hafa þó skilað frá sjer álitum um mentaskólann og kennaraskólann. Jeg hefði kosið þau álit að ýmsu fullkomnari og ítarlegri. Jeg býst við, að þau mundu hafa orðið ítarlegri, ef stjórnin hefði ekki óskað þess, að þeir skiluðu einhverju af sjer fyrir þetta þing. Mjer er tjáð, að þeir ætli að skila áliti um alla skóla landsins fyrir næsta þing. En það álit þyrfti að koma út 1 – 2 mánuðum fyrir þing, svo þjóðin ætti kost á að kynna sjer það, því fleiri landsmenn láta sig skifta, hvernig alþýðuskólunum er skipað, en mentaskólanum.
Jeg vil geta þess, að það eru fleiri þjóðir en við, sem um þessar mundir eru að láta rannsaka skólamál sín. Alda í þá átt virðist nú fara yfir löndin. Allar þjóðir á Norðurlöndum hafa þessi árin skipað nefndir til að rannsaka skólalöggjöf sína. Sumar þær nefndir hafa starfað svo árum skiftir, en hafa ekki enn lokið störfum sínum. Þær hafa tekið sjer lengri tíma til starfsins en milliþinganefndinni hjer hefir verið ætlaður, og væri mikilsvert, að við hefðum hliðsjón af tillögum þeirra, er við tækjum að breyta skólaskipun vorri.
Jeg hygg, að allir — og einnig meiri hl. mentmn. — álíti tíðar breytingar á löggjöf skóla óheppilegar. Þegar breytingar eru gerðar á aðalatriðum skólalöggjafar, verða þær að hafa þann bakhjarl, sem ekki brestur undir eins. En sá bakhjarl er meiri hluti þjóðarinnar. Þjóðin sjálf verður að vera sannfærð um rjettmæti breytingarinnar, kennarar skólanna verða að sætta sig við þær, og nemendurnir að finna, að þær sjeu til bóta. En jeg efast um, að þær breytingar, sem samkvæmt frv. á að gera á mentaskólanum, hafi þennan bakhjarl. Jeg get nú ímyndað mjer, að sumir hinna lærðu manna áliti, að meiri hluti þjóðarinnar hafi ekki mikla þekkingu á, hvað rjettast sje að gera í þessu máli. Má vera, að þeir hafi nokkuð til síns máls. Það munu verða lærðu mennirnir, sem aðallega eiga orðastað um breytingar á þessum skóla. En þeir verða að sannfæra þjóðina, hvað rjett sje og hvað ekki rjett, og reyna að afla skoðunum sínum fylgis. Það er auðvitað ekki víst, að þær skoðanir, sem fá mest fylgið, sjeu rjettastar. En það er víst, að meiri hl. verður að ráða. Það er ekki til neins að reyna að hamra fram hjer á þinginu neinu mikilsvarðandi máli, er meiri hluti þjóðarinnar er á móti, því að þótt slík mál komist fram, þá má ganga að því vísu, að þau verða skammlíf. Og hvað þessum breytingum á mentaskólanum viðvíkur, sem hjer liggja fyrir, þá er líklegast, að jafnvel meiri hl. þjóðarinnar sje á móti þeim.
Beinir málsaðiljar hafa ekki fengið að segja neitt um málið; þeir málsaðiljar eru kennarar gagnfræðaskólans á Akureyri. Jeg veit að minsta kosti ekki til, að þeirra umsagna um þetta mál hafi verið leitað. Getur verið, að milliþinganefndin hafi gert það, en hún hefir þá að minsta kosti ekki birt svör þeirra. Aftur á móti sjest það á áliti hennar, að hún hefir leitað umsagnar kennara við mentaskólann og háskólann. En síðan álit nefndarinnar kom út hefir það komið í ljós, að sumir af prófessorum háskólans eru mjög andvígir sumum brtt. nefndarinnar, svo sem prófessor Ágúst Bjarnason, sem hefir skrifað talsvert um málið. Hann er eindreginn á móti auknu latínunámi og því, að gera skólann að óskiftum skóla. — Jeg lít svo á, að á áliti kennara mentaskólans hefði nefndin mest mátt byggja, þeir hafa mesta reynsluna og þekkingu á skólanum. Má vera, að sumir þeirra sjeu á sama máli og nefndin. En þrír þeirra hafa skrifað mentmn. þingsins, og hafa þeir allir meira og minna út á tillögur milliþinganefndarinnar að setja og vilja allir láta málið bíða næsta þings. þessir kennarar eru þeir Jóhannes Sigfússon, Bjarni Sæmundsson og Þorleifur H. Bjarnason. Allir eru þeir búnir að vera lengi við skólann, eins og kunnugt er, og einn eða tveir af þeim voru orðnir kennarar löngu áður en hin nýja reglugerð kom í gildi, og einmitt af þeim ástæðum ættu þeir að vera manna færastir að dæma um kosti og lesti nýju og gömlu reglugerðar skólans. Jeg vil leyfa mjer að drepa lauslega á nokkur atriði, sem þeir taka fram í ritgerðum þeim, er þeir hafa sent mentmn. og ekki hafa áður komið fram opinberlega.
Jóhannes Sigfússon segir meðal annars: „Að svo vöxnu máli sýnist það nokkuð fljótráðið að gera stórbreytingu á skipun skólans og gera hann að nýju um nokkur ár að tilraunastöð, og trufla þar með rólegar breytingar, bygðar á reynslu. Slíkt atferli væri varla verjandi, nema með því, að bersýnilegir og ólæknandi stórgallar hefðu komið fram á núverandi skipulagi skólans.“ En þeir gallar virðast honum ekki hafa komið fram.
Þorleifur H. Bjarnason telur hið nýja skólaskipulag, sem nefndin stingur upp á, svo gallað í ýmsum verulegum atriðum, að skólinn verði engu bættari, þótt það komist á.
Hann segir enn fr., með leyfi hæstv. forseta: „Milliþinganefndin virðist hafa gert sjer hægt um vik að rannsaka, hvort ekki sje unt að bæta svo skólafyrirkomulag það, sem nú er, að affarasælt geti orðið fyrir land og lýð. Annars mundi hún vart á öðrum fundi sínum með kennurum mentaskólans hafa borið upp tillögu um, að skifting í gagnfræðadeild og lærdómsdeild fjelli niður og skólinn yrði einn samfeldur skóli. Mjer stóð stuggur af þessu fljótræði nefndarinnar og batt atkv. mitt því skilyrði, að nefndin rannsakaði eins ítarlega og kostur væri á, hvort enginn vegur væri til að bæta svo hið núverandi fyrirkomulag, að það gæti haldist, því þó að jeg persónulega hafi meiri mætur á skólafyrirkomulagi því, sem var þegar jeg kom í skóla, þá dylst mjer ekki, af reynslu annara þjóða, að hin nýja skipun hefir þegar og getur enn tekið miklum umbótum. Því fer og fjarri, að hún sje enn fullreynd hjá oss, því þegar hún var komin af barnsaldri og hún átti að fara að standa — að jeg komist svo að orði — á eigin fótum, skall heimsstyrjöldin yfir, sem hefir með afleiðingum sínum hnekt vexti og viðgangi flestra skóla hjer á landi. Það vita og allir, sem bera nokkurt skyn á skólamál, að það er enginn búhnykkur fyrir land og lýð að gerbreyta á fárra ára fresti fyrirkomulagi hinna æðri mentastofnana sinna.“
Hann kvartar enn fremur undan því, að mentmn. hafi farið sínu fram, hvað sem einstakir kennarar hafi lagt til málanna, ef till. þeirra hafi ekki verið að skapi nefndarinnar.
Bjarni Sæmundsson tekur það fram, að áhrif síðustu breytingarinnar á reglugerð skólans sje ekki enn farin að sýna sig fyllilega. Sú breyting var skifting lærdómsdeildarinnar í stærðfræðisdeild og máladeild, sem var gerð 1919. Mjer virðist varhugavert að gera stórbreytingar á skólanum, sem ríða algerlega í bág við till. gamalla og reyndra kennara, er um mörg ár hafa starfað við skólann. En aðalástæðan fyrir frestun þessa máls er sú, að ekki er rjett að afgr. frá Alþingi lög um einn skóla, fyr en fyrir því liggur kerfi um alt skólafyrirkomulag í landinu, en slíkt kerfi liggur alls ekki fyrir þinginu nú. Það er hugsanlegt, að það geti haft áhrif á afstöðu einhverra hv. þm. til þessa máls, hvernig heildarkerfið verður. Til að fyrirbyggja allan misskilning skal jeg taka það fram, að jeg er persónulega reiðubúinn að taka ákveðna afstöðu til málsins og greiða atkv. um það nú þegar.
Eins og tekið er fram í nál. minni hl., þá eru allir nemendur lærdómsdeildar mentaskólans mótfallnir mörgum aðaltillögum milliþinganefndarinnar, og sömuleiðis flestir yngri stúdentar. Og þótt sumir hinir eldri og reyndari lærðu mennirnir geri lítið úr skoðunum og vilja þessara ungu manna, hvað breyting á fyrirkomulagi skólans snertir, þá liggur þó í augum uppi, að verið er að tjalda til einnar nætur, ef breytingar eru samþ., sem allir yngri mentamenn eru á móti, því að þeir munu brátt koma sínum vilja fram. Þeirra málstaður hlýtur að sigra. Mjer finst ekki til mikils mælst, þótt farið sje fram á, að þjóðin fái í eitt ár að athuga þetta mál og ræða það betur en orðið er. Það mun affarasælla að vanda til slíkra laga, svo þau geti staðið um nokkuð langan tíma.
Hv. meiri hl. segir í nál. sínu, að till. milliþinganefndarinnar um mentaskólann sjeu nú orðnar töluvert ræddar á fundum og í blöðum, og litlar líkur sjeu til þess, að málið vinni nokkuð við biðina. Ástæðan til þess, að mein hl. segir þetta, mun vera sú, að hann býst ekki við, að hans málstaður muni græða við biðina; hann býst við hinu gagnstæða, og í því er jeg honum sammála. (M. J.: Hefi jeg nokkurn tíma sagt þetta?). Það stendur í nál. (M. J.: Stendur þar, að okkar málstaður muni tapa á biðinni?). Nei, þar stendur, að ekkert muni vinnast við biðina, — hitt var ályktun mín af þeim forsendum, sem fyrir lágu. (B. J.: Hún kemur bara á afturfótunum).
Aðalágreiningurinn milli mín og meiri hl. nefndarinnar um frv. er ákvæði 2. gr., að skólinn skuli vera samfeldur skóli. Þessu ákvæði er meiri hl. fullkomlega samþykkur, og segir hann svo í nál. sínu, að aðalbreytingin, sem hægt sje að gera á skólanum með lögum, sje sú, að gera hann að samfeldum lærðum skóla, er taki ekki við neinum nemendum, nema að undangengnu prófi. Eina aðalástæðuna fyrir þessu telur meiri hl. þá, að skifting skólans hljóti að hafa það í för með sjer, að námið í neðri bekkjunum verði að miðast við það, að því verði lokið á fáum árum. Fyrir þá, sem áfram ætla að halda, sje þetta tímatöf og tvíverknaður, að þessi tvíverknaður nái til alls meginþorrans, því að reynslan hafi sýnt, að langflestir, sem inn í skólann ganga, haldi áfram náminu. — Það er tvíverknaðurinn, sem meiri hluti nefndarinnar telur skaðlegan. Um margar námsgr. er það ljóst, að þessi tvíverknaður er ekki eins mikill nje eins athugaverður og nefndin gefur í skyn. Frsm. (M. J.) tók það fram, t. d., að öðruvísi þyrfti að kenna mál til undirbúnings háskólanámi en þegar það væri lært í þeim tilgangi að nota það í hinu daglega lífi. Jeg er ekki einn af hinum svo nefndu lærðu mönnum, en mjer skilst, að málfræðislærdómur sje nauðsynlegur fyrir alla, hvort sem málið er „lært fyrir lífið“ eða til undirbúnings háskólanámi, og munurinn á kenslunni þurfi því ekki að vera svo ýkjamikill. Allur lærdómur er í raun og veru lærdómur fyrir lífið, og allur lærdómur á að vera til andlegrar þroskunar. Þótt einhverjar námsgreinar sjeu tvílesnar, fyrst í styttra ágripi, síðar í víðtækara ágripi, þá virðist slíkt ekki vera svo hættulegt fyrir námið. Í mörgum tilfellum er endurtekningin nauðsynleg og mjög eðlilegt, að námið sje gert viðtækara eftir því, sem þroski nemendanna vex.
Þá er sú vörn meiri hl. í þessu máli, að flestir þeir, sem taki gagnfræðapróf nú, haldi áfram alla leið til stúdentsprófs. Í ritgerð þeirri, sem Jóhannes kennari Sigfússon sendi mentmn. og jeg gat um áðan, segir hann, að aldrei hafi jafnmargir hætt að loknu gagnfræðaprófi eins og 3 hin síðustu árin. En einmitt þau ár hefir milliþinganefndin ekki tekið með, er hún reiknaði út, hve margir af hverju hundraði hættu við nám að gagnfræðaprófi loknu. En þyki mönnum of margir halda áfram, þá er til einfalt ráð við því, að menn, sem ekki eru sæmilega til náms fallnir, flykkist ekki inn í lærdómsdeildina. Ekki þarf annað en ákveða í reglugerð skólans, að gagnfræðaprófið eitt nægi ekki til þess, að menn fái inngöngu í lærdómsdeildina, heldur þurfi menn að hafa hlotið vissa stigatölu við prófið til að ná inngöngu.
Í nál. meiri hl. er mjög haldið á lofti, að gagnfræðamentun eigi að vera annars eðlis en undirbúningur undir vísindanám við háskóla. „Annars vegar eru menn, sem vilja afla sjer hagnýtrar mentunar fyrir lifið, en hins vegar menn, sem á þessum sömu árum eiga að leggja sem traustastan grundvöll undir langt vísindanám.“ Svo kemst meiri hl. að orði í nál sínu. Sama skoðunin kom fram hjá frsm. (M. J.), og talaði hann mikið um þetta. Hann tók dæmi af litlu húsi og stóru. Undir litla húsið þyrfti ekki nema litinn kjallara. Engum detti í hug að búa til miklu stærri kjallara en ætlast væri til að húsið yrði. Sömuleiðis dytti engum í hug að búa til lítinn kjallara undir stórt hús. Samkvæmt hans skoðun þarf þegar frá byrjun að leggja annan lærdómsgrundvöll hjá þeim, sem ætla sjer að ganga mentabrautina, en hinum. Mjer þykir annars mikið, að hinir hv. meiri hluta menn skuli ekki bera fram till. um, að börnum, sem seinna meir er ætlað að ganga í lærða skólann og „stunda vísindanám“, skuli kent að stafa í sjerstökum skólum með sjerkennilegum aðferðum, og að þeim sje þegar frá byrjun kendar allar námsgreinar, sem þau eiga að læra, í sjerstökum skólum, sem lagaðir sjeu fyrir nám þeirra síðar meir.
Það mun vera mikið vafamál, hvort nokkur verulegur munur yrði á kenslutilhögun neðri bekkja mentaskólans frá því sem nú er, þótt sú breyting verði gerð á honum, sem meiri hl. mentmn. mælir með. Latínunámið yrði auðvitað meira en nú er og fleiri smábreytingar á námsefni. En að námsaðferðinni verði stórbreytt frá því, sem nú er, er ekki líklegt. Jeg veit a. m. k. að sumir kennarar mentaskólans álíta, að svo verði ekki. Jóhannes Sigfússon segir í áður nefndu brjefi sínu, með leyfi hæstv. forseta: „En verði námsgreinunum í nýja skólanum skipað á svipaðan hátt og nefndin gerir, þá verður ekki betur sjeð en að kenslunni í neðri bekkjunum hljóti að verða svipað hagað í flestum greinum því, sem nú er, og að hún geti varla orðið vísindalegri í þeim bekkjum eftir en áður, eða tryggari grundvöllur undir vísindanám síðar meir.“ Annars virðist mjer, að það sje ekki hægt að skoða mentaskólann, þótt hann fengi hið virðulega nafn „lærði skólinn“, annað en nokkuð víðtækari gagnfræðaskóla og betur útbúinn en þá skóla, sem nú eru kallaðir því nafni. Jeg hefi lítið svo á, að það, sem þar yrði kent, væri í raun og veru alt gagnfræðamentun, meira og minna hagnýt til undirbúnings undir lifið. Vitanlega þeim mun hagnýtari, sem hún er víðtækari. En þó að hv. meðnefndarmenn mínir sjeu búnir að lýsa því með mörgum orðum, hve mikill munur eigi að vera á neðri bekkjum mentaskólans og gagnfræðaskóla, þá segja þeir þó í áliti sínu, „að hægðarleikur sje að gera gagnfræðaskólann á Akureyri svo úr garði, að röskir námsmenn geti staðist próf til 4. bekkjar lærða skólans viðstöðulítið eða viðstöðulaust, að loknu gagnfræðaskólanámi á Akureyri.“ Hjer virðast þeir viðurkenna, að munurinn á kenslunni verði ekki eins mikill og þeir annars vilja halda fram að þurfi að verða, og þar með viðurkenna þeir einnig, að munurinn á gagnfræðaskólanámi og undirbúningi undir „vísindanám“ sje ekki svo ýkjamikill. En þeir bæta því þó við, að með þessu móti komi aðeins „úrvalsmenn“ frá skólanum á Akureyri. Þaðan mega ekki koma aðrir en „úrvalsmenn“ inn í lærða skólann, eftir því sem meiri hl. nefndarinnar segir, en jeg er hálfhræddur um, að ekki komi tómir „úrvalsmenn“ í 1. bekk skólans, og meira að segja margir af þeim, sem komast munu alla leið í gegnum hann til stúdentsprófs, verði ekki neinir sjerstakir „úrvalsmenn“. En „úrvalsmennimir“ að norðan eiga líklega að bæta þá upp. Annars segja hv. meðnefndarmenn mínir í nál. sínu, að það sje heppilegt, að ekki girnist aðrir að ganga inn í lærða skólann en þeir, „sem nokkuð treysta sjer.“ Eftir því mega börn, sem mikið sjálfstraust hafa, fara inn í skólann, en hin, sem kjarkminni eru, eiga ekki að gera það. Jeg tel nú varasamt að treysta um of á sjálfstraust barna á þessum aldri, og jafnvel þó þau sjeu nokkuð eldri, enda er það oft svo, að þeir, sem treysta sjer mest, geta ekki ávalt mest. „Já, miklir menn erum við, Hrólfur minn,“ sagði Vilhjálmur forðum daga. Jeg álít það mjög hæpið að byggja mjög mikið á námshæfileikum barna innan fermingaraldurs. Það hefir sýnt sig, að menn, sem í æsku hefir lítið borið á, hafa orðið hinir nýtustu menn, er út í lifið hefir komið, og margir góðir námsmenn hafa orðið litlir afkastamenn, er til starfs og framkvæmda hefir komið. Það sannast oft, sem gömlu sögurnar segja um systurnar þrjár, Ásu, Signý og Helgu, að þótt Helga lægi í öskustó og foreldrar hennar hefðu lítið álit á henni, þá. varð hún miklu meiri og betri en systur hennar, sem foreldrarnir höfðu dáð svo mjög fyrir gáfur. — Mjer kemur í hug það, sem skólastjóri fyrir skóla, sem Niels Finsen gekk í, þegar hann var drengur, sagði um Finsen. Hann sagði, að Niels væri góður piltur, en ósköp gáfnalítill.
Unglingar eru mjög misjafnlega bráðþroska, bæði hvað snertir námshæfileika og allan annan þroska. Það er þess vegna mjög hæpin leið, sem hv. meðnefndarmenn mínir vilja fara, að gera sem allra erfiðasta inngöngu í 1. bekk skólans. Hvorki foreldrar nje aðrir vita með vissu, hvað í börnunum býr innan við fermingaraldur. Það fer því oft eins og fyrir karli og kerlingu í Garðshorni, sem áttu dæturnar þrjár, sem jeg gat um áðan, Ásu, Signý og Helgu, en höfðu minst álit á Helgu. Það verður oft Helga, sem reynist best, sá unglingurinn, sem minstur gaumur var gefinn. (B. J.: Erfiðasti skólinn). Já, en sú af dætrunum, sem síst hefði fengið inngöngu í hinn fyrirhugaða „lærða skóla“.
Mjer finst þess gæta nokkuð mikið hjá hv. meðnefndarmönnum mínum og milliþinganefndinni, að mest megi ætíð vænta af þeim mönnum, sem mestir námsmenn eru í æsku, og að þeim einum sje treystandi til að búa sig undir háskólanám.
Samkvæmt frv. mega 13 ára börn ganga inn í skólann; þá eiga þau að hafa afráðið það, hvort þau vilji ganga lærða veginn eða ekki. í flestum tilfellum eru það foreldrarnir, eða aðrir aðstandendur, sem taka þessa ákvörðun fyrir þau. Er nú nokkurt vit í þessu? Er hægt að búast við, að börnin finni þá, hvert hugur þeirra stefnir, eða hafi áttað sig á, til hvaða lífsstarfs þau muni best fallin? Svo mun það vera í fæstum tilfellum.
Og jeg hygg, að foreldrarnir standi lítið betur að vígi að vita, hvaða lífsstarf muni henta börnum þeirra best. Enda álít jeg það rangt, að aðstandendur barna ráði því, hvort þau skuli ganga hinn svo kallaða lærða veg eða eigi. Það á að stefna að því, að hver unglingur finni sjálfur, hvað í honum býr, og að hann sjálfur kjósi þann veg, sem hann vill helst ganga. Og jeg tel það mikinn kost að veita unglingunum, þann tíma, sem gagnfræðanámið stendur yfir, tækifæri til þess að átta sig á því, hvaða lífsstöðu þeir helst eigi að velja sjer. Á þeim tíma geta þeir fengið reynslu fyrir því, hvort þeir hafi löngun til að halda áfram frekara námi eða ekki, og hvort þeir sjeu færir um að stunda erfitt nám.
Hv. meiri hl. heldur því fram, að fleiri muni halda áfram til stúdentsprófs, ef skólinn sje skiftur skóli, heldur en ef hann sje óskiftur. Jeg held, að það yrði hið gagnstæða. Engum mundi þykja það vansæmd að fara úr skólanum með gagnfræðaprófi, en aftur á móti myndu flestir, sem á annað borð færu inn í skólann, ógjarnan vilja hætta á miðri leið, ef skólinn væri óskiftur. Annars er jeg ekkert myrkfælinn við það, þótt við eignuðumst nokkuð margt af stúdentum, því að jeg held, að það sje hverri þjóð til þrifa að eiga góðan hóp mentaðra manna, og jeg sje því enga þörf á að stritast við að finna upp öfluga stíflu við því, að svo verði. Og þessi stífla, seni upp fundin yrði, með því að gera skólann að óskiftum skóla, yrði að eins til þess, að nokkuð færri myndu fara í skólann af þeim, sem sæktu gagnfræðaskólann á Akureyri. Það yrðu nokkuð færri Norðlendingar og Austfirðingar. Það yrðu nokkuð færri sveitapiltar, sem sæktu mentaskólann, en nú gera. En slíkt mun vart talið hyggilegt, og heldur ekki af háttv. meðnefndarmönnum mínum, sem vilja gera skólann óskiftan. Varla nokkur mun telja það heppilegt, að hlutföllin á milli sveitapilta og pilta úr Reykjavík, sem sækja mentaskólann, raskist þannig, með breytingu á reglugerð skólans, að tiltölulega færri sveitapiltar sæki hann eftir en áður. Þá kem jeg að því atriðinu, sem mest hefir verið haldið á lofti af þeim mönnum, sem vilja gera skólann af óskiftum 6 ára skóla, sem sje því, að þeir nemendur, sem hafa útskrifast eftir reglugerðinni frá 1904, sjeu ver búnir undir háskólanám en þeir, sem útskrifuðust eftir eldri reglugerðinni. Rannsóknin, sem milliþinganefndin hefir gert þessu viðvíkjandi, virðist ekki vera nægileg. — Nefndin hefir ekki rannsakað einkunnir þeirra íslenskra stúdenta, er stundað hafa nám við Kaupmannahafnarháskóla.
Þorleifur H. Bjarnason segir, að Íslenskir stúdentar hafi ekki í annan tíma tekið betri embættispróf þaðan en einmitt þessi ár. Býst jeg við, að hann hafi rannsakað þetta, og það megi fullyrða, að hann fari með rjett mál.
Stúdentar þeir, sem stundað hafa nám við Kaupmannahafnarháskóla þessi ár, sýna með þessu, að skifting skólans hefir ekki gert þá óhæfari til náms en þótt þeir hefðu lært í óskiftum lærðum skóla.
Hv. meiri hl. fullyrðir, að það sjeu aðeins þeir, sem búa á Akureyri sjálfri og nærsveitunum, sem hægra eigi með að sækja skóla þar en til Reykjavíkur. Hann segir enn fremur, að það sje af öðrum ástæðum, að menn hænist meir að gagnfræðaskólanum á Akureyri af Norður- og Austurlandi en skólanum hjer í Reykjavík. Þá ástæðu telur hann vera heimavistirnar við Akureyrarskólann. Nú eru þegar margar heimavistir við gagnfræðaskólann á Akureyri, og geta þær rúmað mjög marga nemendur.
Hugsum okkur, að heimavistum verði komið upp við mentaskólann, sem jeg tel sjálfsagt að gert verði. Þá þarf þær ekki eins margar og ella, ef ekki er slitið sambandi hans við skólann á Akureyri. En þótt heimavistir verði við báða skólana, þá hljóta þær altaf að verða mikið dýrari hjer en á Akureyri. Fullyrðing nefndarinnar um þetta efni er staðleysa. Jeg vil taka dæmi, þessu til sönnunar. Mjólk kostar hjer í vetur 1 kr. lítrinn, en 50 aura á Akureyri. Kjöt og fiskur er einlægt mikið ódýrara á Akureyri en hjer í Reykjavík, og þar að auki er ætið betra að fá íslenskar framleiðsluvörur þar en hjer, þó sjerstaklega mjólk.
Ef mentaskólinn verður gerður óskiftur, þá hlýtur það að hafa í för með sjer, að stofna verði sjerstakan gagnfræðaskóla hjer í Reykjavík. Jafnvel þó að hv. frsm. meiri hl. (M. J.) haldi því fram, að það hafi sýnt sig, að flestallir Reykvíkingar, sem lokið hafa gagnfræðaprófi, hafi haldið áfram til stúdentsprófs, þá er það nú samt ekki algild regla. Og vitanl. krefjast Reykvíkingar þess, að gagnfr.skóli, er stofnaður yrði hjer, verði kostaður af ríkissjóði, og jeg get ekki betur sjeð en að sú krafa sje svo sanngjörn, að Alþingi mundi ekki geta neitað að verða við henni, því að vitanlega munu fleiri sækja þann skóla en Reykvíkingar einir. Og jafnvel þó að Reykvíkingar skipuðu hann að miklu leyti, þá eru þeir svo mikill hluti þjóðarinnar, að erfitt mun verða að neita þeim um, að ríkið kostaði fyrir þá einn alþýðuskóla. Þessi hlið málsins hefir því ekkert verið rannsökuð, og ætti þetta eina atriði að nægja til þess, að hv. Alþingi sæi sjer ekki fært að afgr. málið nú þegar.
Jeg vona, að jeg hafi nú sýnt fram á með nokkrum rökum, að betur þurfi að athuga mál þetta en enn er gert, ef á að gera mentaskólann að óskiftum skóla. En jeg get fullvissað hv. deild um það, að verði sambandinu við gagnfræðaskólann á Akureyri slitið, þá munu Norðlendingar og Austfirðingar ekki linna fyr en gagnfræðaskólinn á Akureyri verður gerður að lærðum skóla. Þá kröfu munu þeir gera strax og sambandinu er slitið.
Þá vil jeg með nokkrum orðum minnast á þriðja atriðið, sem ber á milli mín og flestra hv. meðnefndarmanna minna, sem er um það, hvort auka eigi latínunám í skólanum eða eigi. Í umsögn háskólakennaranna um það, í hvaða námsgreinum mentaskólans þeim finnist helst þekkingu stúdenta ábótavant, þá telja þeir það vera íslenskuna. Milliþinganefndin virðist hallast að þeirri skoðun, að íslenskukunnáttan hafi verið betri áður hjá stúdentum en hún er nú. Formælendur latínunnar þakka latínunni það. En jeg vil benda á grein eftir mag. Sigurð Guðmundsson, sem hann skrifaði í 3. tbl. „Skólablaðsins“ þetta ár. Hann viðurkennir ekki nauðsyn latínunáms til þess að læra vel íslensku, og er hann þó líklega besti íslenskukennarinn, sem við eigum. Háttv. frsm. meiri hl. (M. J.) viðurkennir, að það mætti hafa fleiri námsgreinar en latínu sem aðalnámsgrein, og kemur mjer þá í hug mál, sem okkur stendur nær en latínan, og er það íslenskan, móðurmál okkar. Það er ekki latínan, sem hefir gert okkur fræga; það er ekki latínunni að þakka, að þjóðin hefir varðveitt hið forna móðurmál sitt og þjóðerni. Við megum þakka það þeim Ara og Snorra. Þakka þeim fyrir, að þeir skrifuðu bækur sínar á íslensku, en ekki latínu, sem þó var lærðra manna siður í öðrum löndum á þeim tímum. Ef þeir hefðu skrifað á latínu, þá hefðum við ekki talað íslensku í dag í þessum sölum; þá hefðum við ekki haft þau vopn, sem við höfum haft til þess að berjast með fyrir sjálfstæði voru. Þá hefði hjer nú ekki verið háð neitt Alþingi. Við megum því þakka fyrir, að forfeður vorir á 11. og 12. öld gerðust ekki þrælar latínunnar.
Jeg þarf ekki að tala mikið um einstakar greinar frv. og heldur ekki um brtt. nefndarinnar.
Jeg tel breytingar þær, sem nefndin hefir gert á stjórnarfrv., flestar til bóta, og mun greiða atkv. með þeim öllum nema 7. brtt., af þeirri ástæðu, sem jeg hefi þegar tekið fram. En þótt jeg sje ósamþykkur sumu í frv. stjórnarinnar, og þá sjerstaklega 2. gr., um að skólinn skuli vera óskiftur 6 ára skóli, þá hefi jeg ekki flutt neina brtt. við frv. við þessa umr., af þeirri ástæðu, sem menn geta skilið af nál. minni hl. og því, sem jeg hefi nú sagt. Jeg tel það ólíklegt, að hv. deild felli dagskrána og samþ. frv. til 3. umr., en fari svo, þá mun jeg koma með brtt. fyrir þá umr.
Sem sagt, þá lít jeg svo á, að þetta mál þurfi að athugast betur en enn hefir verið gert. Jeg vil biðja hv. þm. að athuga, að hjer á ekki að tjalda til einnar nætur.
Eins og hv. deildarmenn munu hafa tekið eftir, þá erum við nefndarmenn, sem höfum skrifað undir minni hl. álitið, ekki sammála að öllu leyti, og býst jeg við, að hinn hv. meðnefndarmaður minn muni gera grein fyrir sinni skoðun.