28.02.1921
Neðri deild: 10. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í C-deild Alþingistíðinda. (3030)
55. mál, skoðun á síld
Flm. (Stefán Stefánsson):
Okkur þm. Eyf. hefir verið sent frv. þetta til flutnings af Siglfirðingum, en það eru þeir menn, sem mestan kunnugleika og mesta þekkingu hafa á skoðun eða mati á síld, enda hafa þeir þar að auki haft sjerfræðing sjer til aðstoðar við samning frv., sendimann, er sænska stjórnin hefir sent hingað til þess að taka á móti þeim 50 þúsund tunnum af síld, er sænska bjargráðanefndin keypti af Siglfirðingum.
Af þessum ástæðum má búast við því, að frv. þetta sje svo vel úr garði gert, að menn geti treyst því, að í því sje bent á hyggileg og heppileg ráð til að tryggja þennan atvinnuveg. Jeg veit, að flestum muni vera það áhugamál, að þessi atvinnugrein megi verða sem tryggust og arðvænlegust, en engum þó meira en Siglfirðingum sjálfum.
En þetta tek jeg fram til þess að benda mönnum á, að þeir, sem um frv. hafa fjallað, eru allra manna fróðastir og áhugasamastir um þessi mál og hafa því í engu kastað til höndum við samning frv.
Aðalbreytingarnar, sem frv. þetta fer fram á, eru:
1. Að engir meti síld aðrir en þeir, sem eru lögskipaðir matsmenn af stjórninni,
2. Að nýveidd síld skuli ekki metin, nema ágreiningur rísi milli seljanda og kaupanda um það, hvort síldin sje skemd.
Er það ákvæði sett í frv. vegna þess, að semjendur frv. telja frummat á síld ekki ná tilgangi sínum. Reynslan hefir sýnt, að undirmatsmennirnir standa oft og tíðum vikum saman aðgerðalausir, af því að enginn ágreiningur verður, en risi ágreiningur, þá er leitað álits og úrskurðar yfirmatsmanna.
3. Að 10 aura matsgjald leggist á hverja metna síldartunnu, og rennur það gjald í ríkissjóð.
Er svo ráð fyrir gert í frv., að landinu verði skift í 4 matsumdæmi, og yfirmatsmennirnir verða nú 4, í stað 2 áður, í Norðlendingafjórðungi. Eru það að vísu aukin útgjöld fyrir ríkissjóð að launa þessa menn, en fyrir þeirri gjaldaaukningu ætti matsgjaldið fyllilega að hrökkva.
Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um málið við þessa umr. Vil aðeins geta þess, að ekki þarf að nema önnur lög úr gildi en lög frá 1919, um skoðun á síld, þó frv. þetta verði samþ.
Að endingu vil jeg svo æskja þess, að málinu verði vísað til sjávarútvegsnefndar að lokinni umr.