11.03.1921
Neðri deild: 20. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í C-deild Alþingistíðinda. (3046)

79. mál, sveitarstjórnarlög

Jón Sigurðsson:

Ef jeg hefði haldið, að svona langar umræður mundu veru miðlunartillaga við breytingar þær, sem gerðar voru 1919. Ástæðurnar fyrir því, að þetta frv. er fram komið, eru skýrðar í greinargerðinni fyrir frv., og sje jeg því ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þær á þessu stigi málsins, en vonast eftir, að málinu verði vísað til nefndar; mundi jeg geta gefið henni nokkru nánari skýringu, ef hún óskaði. Jeg læt svo úttalað um þetta mál að sinni, en óska, að því verði vísað til allsherjarnefndar að umr. lokinni.