17.05.1921
Neðri deild: 71. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (3068)
79. mál, sveitarstjórnarlög
Þorleifur Guðmundsson:
Jeg verð að fallast á brtt. á þskj. 585, þó jeg álíti rjett að leggja á öll slægjuafnot, því hún gengur þó nær sanni, en frv.
Jeg er hræddur um, ef á að fara að undanskilja alla þá, sem nota heyaflann handa skepnum sínum, að þá verði ekki svo gott að finna þá úr. Eg veit, að margir Reykvíkingar fá slægjur austur í sveitum og hafa síðan heyið handa kúm sínum hjer í Rvík og selja mjólkina úr þeim í gróða skyni. Slíkar „spekulationir“ held jeg að ekki sje gott að girða fyrir. Jeg mun því fremur hallast að brtt. á þskj. 585, því ef brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) verður samþ., þá tel jeg beinlínis hættu á því, að sumir hreppar leggist algerlega í auðn.