19.05.1921
Efri deild: 73. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í C-deild Alþingistíðinda. (3076)
79. mál, sveitarstjórnarlög
Fjármálaráðherra (M. G.):
Mál þetta er mjög einfalt, það er aðeins lítil breyting á því, á hverja utansveitarmenn má leggja útsvar. Ef á að fara að vísa máli þessu til nefndar, þá verður það vart afgreitt á þessu þingi. Jeg mæli því með, að mál þetta gangi fram nefndarlaust.