19.05.1921
Efri deild: 73. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í C-deild Alþingistíðinda. (3077)

79. mál, sveitarstjórnarlög

Sigurður Eggerz:

Jeg tek undir till. hæstv. forseta, að málið gangi til nefndar. Við vitum, að menn eru ætíð viðkvæmir fyrir svona málum, og væri leitt, ef það þyrfti að koma fyrir aftur, eins og átti sjer stað í dag, að menn greiddu ekki atkv. vegna þess, að þeir hefðu ekki haft tíma til að kynna sjer málið.