28.04.1921
Neðri deild: 57. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í C-deild Alþingistíðinda. (3094)
84. mál, vextir
Gunnar Sigurðsson:
Mjer þykir það leiðinlegt, að geta ekki sannfært hv. frsm. (M. K.), því jeg er þess fullviss, að hann hefir á röngu að standa. Sjer það hver heilvita maður, að menn freistast frekar til að leita til okurkarla og taka lán gegn óhæfilega háum vöxtum, þegar ekki er hægt að fá lán í bönkum eða sparisjóðum einmitt vegna lagaákvæðanna um þetta. Sannaði því hv. frsm. (M. K.) það í ræðu sinni, sem hann vildi ósanna, og fer svo oft fyrir þeim, sem illan hafa málstaðinn, að minsta kosti ef þeir eigi eru því færari að vitsmunum.
Hann sagði, að nefndin hefði orðið við tilmælum mínum. En þetta er ekki rjett, því að lögin frá 1890 standa í stað, enda þótt vaxtamunurinn sje orðinn 3% frá því, sem þá var, því að þá voru algengir vextir 5%, en nú eru þeir 8%. Hins vegar, eins og jeg hefi sagt áður, var mjer ekkert kappsmál, að rentufóturinn væri fastákveðinn, en einn af hv. þm. benti mjer á, að það hefði þann kost að ákveða hann, að menn ættu þá frekar á eitthvað vist að róa. Býst jeg annars við, að hvorugur okkar muni sannfærast af ræðum hins, og sýnist best að láta málið ganga til 3. umr. og rjett að semja vopnahlje þangað til, því þar má koma fram með brtt. En stærsta atriði máls þessa er það, að það er hættulegt, að sú venja verði ríkjandi að lána mest út á nöfn. Efnahagur manna er fljótur að breytast, og sami maður getur verið ríkur í dag og fátækur á morgun. En fasteignirnar eru tryggar; þær standa óhaggaðar, og þær á að nota sem grundvöll fyrir öllu lánstrausti.