16.03.1921
Neðri deild: 24. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í C-deild Alþingistíðinda. (3102)

90. mál, ellistyrkur presta og eftirlaun

Flm. (Magnús Jónsson):

Hæstv. fjrh. (M. G.) hefir misheyrst um fjárlagafrv. Jeg sagði, að stjórnin hefði ekki sjeð sjer fært að flytja frv. af sömu ástæðu og hún reynir að sníða af allan kostnað, hvar sem því verður við komið, eins og best sjest af fjárlagafrv.

Viðvíkjandi því, að uppgjafaprestar hafi ýmsar stöður, þá getur slíkt ekkert haft að segja og í þeim tilfellum getur ríkið ekki tekið tillit til, að sumir uppgjafaprestar hafa starfað í öðrum stöðum, síðan þeir ljetu af prestsskap, en það eru ekki allir. Og hvernig ættu þeir að fara að því að lifa á eftirlaununum, ef þeir gerðu ekkert annað? En þeir eru áhugasamir og fá sjer því vinnu til að lifa af. Að örfáum undantekningum væri þeim þörf að fá ríflegri styrk en þessar bætur mundu láta þeim í tje.

Það er heldur ekki, að þetta sje spor í öfuga átt við það að afnema eftirlaun, því að það er bara farið fram á, að þeir, sem nú þegar eru komnir á eftirlaun eða eiga nú þegar rjett á eftirlaunum, fái þessi eftirlaun eftir sömu reglum og aðrir embættismenn, ekki jafnhá, en í jöfnu hlutfalli, sem tekjurnar voru af embættum þeirra. Afnám eftirlauna getur eins náð fram að ganga fyrir því, og er því óviðkomandi.