16.03.1921
Neðri deild: 24. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í C-deild Alþingistíðinda. (3103)

90. mál, ellistyrkur presta og eftirlaun

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg skal aðeins upplýsa það, að jeg gæti tilnefnt presta, sem eru í embættum hjá ríkinu, en jeg vil ekki nefna nöfn, en fullyrði, að svo sje, og mun það koma í ljós við rannsókn nefndarinnar. Það hlýtur að vera spor í öfuga átt við afnám eftirlauna að hækka þau, og er það því rjett mælt, sem jeg sagði áður.