07.05.1921
Neðri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (3107)
90. mál, ellistyrkur presta og eftirlaun
Frsm. (Jakob Möller):
Þess er getið í nál., að nefndin hafi einróma fallist á frv. En undir því standa aðeins 6 af nefndarmönnum. Stafar þetta af því, að eitt nafnið fjell af vangá burt við prentunina. Annars tel jeg ekki þörf að mæla með frv., því jeg veit, að hv. deild sjer, að full sanngirni er í því, að frv. gangi fram. Hjer er aðeins um fáa menn að ræða og ekki farið fram á annað en að þeir njóti jafnrjettis við aðra embættismenn um eftirlaun. Útgjöldin eru hverfandi lítil.