07.05.1921
Neðri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í C-deild Alþingistíðinda. (3114)

90. mál, ellistyrkur presta og eftirlaun

Fjármálaráðherra (M. G.):

Mjer kemur það undarlega fyrir, ef á að neita því, að prestar, sem gengu undir launalögin 1919, hafi eftirlaunarjett samkv. þessu frv. Er það bersýnilegt, að frv. nær til allra presta, sem voru í embættum 1. jan. 1920.

Skilningur minn á þessu frv. er alveg rjettur, og verð jeg að láta í ljós undrun mína yfir þeim yfirdrepsskap, sem hjer er viðhafður, bæði hjá frsm. (Jak. M.) og ígreinargerð frv. Þetta hefir vilt fjárhagsnefnd, en nú hefi jeg lyft frá slæðunni, og er ekki hræddur um nú, að frv. verði samþ., einmitt vegna þeirrar undirferli, sem notuð hefir verið í málinu.