07.05.1921
Neðri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í C-deild Alþingistíðinda. (3116)

90. mál, ellistyrkur presta og eftirlaun

Fjármálaráðherra (M. G.):

Þeir fá bæði eftirlaun og safna lífeyri. Þetta hefir nefndin ekki athugað.

Jeg óska því, að hv. nefnd vilji athuga þetta betur, og taki málið út af dagskrá. Jeg finn, að hv. frsm. (Jak. M.) er hjer í góðri trú, og því er þetta best.