21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í C-deild Alþingistíðinda. (3128)
98. mál, vegir
Magnús Pjetursson:
Hæstv. atvrh. (P. J.) hefir tekið fram ýmislegt af því, sem jeg vildi sagt hafa, og er jeg honum að mörgu leyti sammála. En af því að jeg er einn þeirra, sem hlut áttu að þál. þeirri, sem hjer hefir verið dregin inn í umr., vegna þess að ætlast var til að rannsaka einnig veg um Strandasýslu, vil jeg geta þess, að mjer fyrir mitt leyti finst það ofurskiljanlegt, þó stjórnin hafi ekki gert þar meira að, en orðið er. Og jeg skil ekki, hvaða þýðingu það getur haft, að vera að flytja þetta frv. nú á þessu þingi, úr því ekki er hægt að ætlast til þess, að ákvæðin komist til framkvæmda.
Einnig er jeg alveg sammála hæstv. atvrh. (P. J.) um það, að slíkum málum sem þessu, beri í raun rjettri að vísa til fjárveitinganefndar, jafnvel þó samgöngumálanefnd hafi stundum tekið það upp hjá sjálfri sjer að hlutast til um þessi mál, þótt hún fjalli annars aðallega um samgöngur á sjó. En ef hún vill nú endilega taka þessi að sjer líka, þá finst mjer eðlilegast, að hún taki þá allan þann lið fjárlaganna, sem um vegagerðir ræðir, á sama hátt og hún hefir tekið lið 13. gr. C.
Að öðru leyti geri jeg þetta ekki að kappsmáli, en vil að eins undirstrika það, hver vandamál þessi vegamál eru, og að þar þarf einmitt vel að gæta samræmisins og heildarinnar og samræmis í framhaldi framkvæmdanna, og vafalaust hefir fjvn. best skilyrði til þess að vinna að þessu. Þá gæti jeg fremur látið mjer það lynda, þó það færi í samgmn., af því, að þar á nú sæti sá maður, sem sennilega er betur inni í vegamálum og kunnugri vegakerfi landsins en nokkur annar þm., og hefir lagt grundvöllinn undir það kerfi og þau lög, sem nú eru notuð um það, er að vegamálum lýtur.