03.03.1921
Efri deild: 13. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

38. mál, verslun með tilbúinn áburð og kjarnfóður

Frsm. (Sigurður Jónsson):

Nefndinni er ánægja að heyra, að hæstv. atvinnumálaráðherra (P. J.) er ánægður með störf nefndarinnar í þessu máli. Hvort vera skal „getur“ eða „skal“ í brtt. við 4. og 6. gr., er ekki mikið áhugamál fyrir honum, en nefndin verður að halda fast við þessi atriði.