08.04.1921
Neðri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í C-deild Alþingistíðinda. (3189)
102. mál, bann á innflutningi á óþörfum varningi
Jón Þorláksson:
Jeg sje ekki að framkoma þessa frv. sje í neinn bága við það, sem deildin hefir áður gert. Hins vegar er tilgangur þess óljós eftir greinargerðinni að dæma, enda hefi jeg sannfærst betur um það eftir að hafa hlustað á ræðu háttv. flm. (Jak. M.). Þar kom ekkert fram, sem skýrði tilgang frv. að neinum mun, og er mjer hann jafnóljós eftir sem áður.
Eins og kunnugt er, þá hefir verið gengið svo frá þessu máli, að búið er að taka af stjórninni heimildina til að takmarka eða banna innflutning á nauðsynjavörum, og var það gert með því að fella bráðabirgðalögin frá 15. apríl úr gildi. Nú er því aðeins eftir heimildin til að takmarka eða banna innflutning á óþörfum varningi, en samkv. eðli málsins hlýtur altaf að vera nokkurt álitamál um einstöku vörutegundir, hvort óþarfar sjeu eða ekki.
Tildrög þessa frv. munu vera þau, að feld var hjer í deildinni rökstudd dagskrá frá hv. samþingismanni mínum, þar sem svo var að orði kveðið, að fella úr gildi takmörkun á innflutningi á nauðsynjavörum, og var þó vitanlega samkvæmt henni sama óvissan um flokkunina. Jeg skal að vísu játa, að fram geta komið afkáralegar skoðanir hjá einstöku mönnum í þessu efni, eins og t. d. hjá hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), sem taldi niðursoðna mjólk óþarfa, sem takmarka mætti innflutning á. En eftir því á Alþingi ekki að fara, þó að einstakir menn sjeu svo takmarkaðir eða ókunnugir þessu máli, að þeir fleygja fram í þingsalnum þvílíkum fjarstæðum.
Fyrir mjer er þetta svo, að það eina, sem eftir sje að útkljá, sje það, hvort Alþingi vilji láta stjórnina halda að einhverju leyti heimildinni til að takmarka eða banna innflutninginn. En að veita henni heimildina á annan hátt um leið og eldri heimildin væri úr gildi feld, eins og greinargerðin fer fram á, hefir enga þýðingu.
Því hefir þegar verið slegið föstu, að til þess að banna innflutning á nauðsynjavörum hefir stjórnin nú enga heimild. Jeg ljet þá skoðun áður í ljós, þegar bráðabirgðalögin frá 15. apríl voru til umr., að óþarfavöruinnflutningurinn væri svo lítill, að engu munaði, þó ráðist væri á hann, þ. e. a. s. ef tollvörunum væri slept, og kemur sú skoðun heim við það, sem meiri hl. viðskiftamálanefndar heldur fram.
Viðskiftamálanefnd lýsti því aðeins yfir, að hún bæri ekki fram frv. um afnám laganna frá 8. mars; en úr því slíkt frv. er nú fram komið, þá get jeg fylgt því, af því að innflutningur þessi nemur svo litlu og hefir enga þýðingu fyrir gjaldeyrisspursmálið.