08.04.1921
Neðri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í C-deild Alþingistíðinda. (3190)

102. mál, bann á innflutningi á óþörfum varningi

Sveinn Ólafsson:

Jeg skal ekki lengja umr. að miklum mun, enda þykist jeg sjá forlög frv. þessa fyrirfram. En mjer finst, að jeg geti ekki látið vera að lýsa hug mínum til þess. Mjer finst framkoma þessa frv. lýsa fullkominni ljettúð. Jeg viðhef það nafn og hygg marga mjer sammála. Jeg nefni það ljettúð að bera fram slíkt frv. og þetta, eins og ástandið er nú, þegar efnahagsvandræði blasa við á öllum vegum; vandræði, sem framar öðru stafa af óhóflegum innflutningi og gróðabralli í sambandi við hann. Viðskiftahömlur, sem beitt er með festu og skynsemd, eru eina bjargráðið, sem dugað getur, en eftir frv. á að taka þessi varnargögn úr höndum stjórnarinnar.

Jeg þykist vel geta skilið það, að hv. þm. Reykv. flytji slíkt mál inn á þing og þetta er. Þeir eru talsmenn þeirra kjósenda, sem lifa á viðskiftum og verslun slíkra vara, sem gert er ráð fyrir að takmarka innflutning á eða banna. Engan furðar á því, þótt þeir sjeu nærgætnir og hugulsamir við kjósendur, og verð jeg að fyrirgefa Það, en jeg treysti því, að aðrir hv. þdm. hugsi meira um heildarhaginn, og felli þegar frv. þetta.

Hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) vitnaði til orða, sem fallið höfðu hjer í deildinni, er bráðabirgðalögin frá 15. apríl f. á. voru til umr., og nefndi það fáránlega kenningu að takmarka mætti innflutning á niðursoðinni mjólk. Orðum þessum mun hann hafa beint til mín, en hann sleit þau út úr rjettu samhengi og rangfærði þau, og þess vegna tókst honum að gera númer úr þessu. Það vill nú svo vel til, að jeg man enn þá, hvað jeg sagði, og skal því leyfa mjer að leiðrjetta þennan misskilning. Jeg viðhafði þau orð, að líkl. mætti takmarka nokkuð innflutning á mjólk, væri hámarksverð sett á þá mjólk, sem framleidd er í landinu sjálfu.

Jeg held því enn fram, að þetta sje gerlegt. Í landinu eru svo margir mjólkurgripir, að mjer skilst, að við ættum alls ekki að þurfa að flytja inn einn einasta lítra af mjólk, ef sú innlenda framleiðsla nýttist. Mjer telst svo til, að um hverja eina kú í landinu sjeu 3 menn eða 4, og 5–6 ær sjeu fyrir hvern landsbúa; geitfje þó ekki talið með. Með þennan fjölda mjólkurgripa fyrir augum er vissulega engin fjarstæða að tala um að takmarka megi innflutning á mjólk. En hitt er annað mál, að jafnframt takmörkuninni þyrfti að bæta meira eða minna úr því sleifarlagi, sem veldur því, að innlenda mjólkin nýtist ekki.

Annars vil jeg ekki að þessu sinni tefja umr. frekar, en með leyfi hæstv forseta vil jeg lesa upp rökstudda dagskrá, er hljóðar svo:

Í því trausti, að stjórnin beiti lögunum frá 8. mars 1920 í hvert sinn eftir atvikum, eins og hentar, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.

Fleira þykist jeg ekki þurfa að segja og leyfi mjer að afhenda hæstv. forseta þessa rökstuddu dagskrá.