08.04.1921
Neðri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í C-deild Alþingistíðinda. (3193)

102. mál, bann á innflutningi á óþörfum varningi

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Út af orðum hv. 4. þm. Reykv. (M. J.), vil jeg benda honum á, að samkomulagið, sem jeg benti til, hefir verið lesið upp í nál., viðskiftamálanefndar, og þetta samkomulag var grundvallaratriði undir meðferð málsins (M. J.: Þingið samþ. ekki þessi orð nál.). En það er skoðað svo, að ef ekki er mótmælt nál., þá hafi það gildi sem lagaskýring. Nú var stjórnin öll á fundi nefndarinnar er samkomulagið gerðist, og man jeg mörg dæmi þess frá nefndum hjer á þingi, sem jeg hefi setið i, að nefnd og stjórn komu sjer saman um ýms mál, og nefndarmenn töldu sig síðan bundna við það samkomulag. Jeg verð því að telja það beinlínis gabb, ef þessir sömu menn greiða nú atkv. með því að fella heimildina úr gildi, ekki síst eftir að stjórnin er búin að hafast það að í þessu máli, sem öllum er kunnugt.