08.04.1921
Neðri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í C-deild Alþingistíðinda. (3196)

102. mál, bann á innflutningi á óþörfum varningi

Jón Baldvinsson:

Út af því, sem hv. þm. Borgf. (P. O.) las upp úr nál. viðskiftamálanefndar, þá finst mjer rjett að standa upp og lofa hv. deild að heyra önnur ummæli í nál., sem jeg vil leyfa mjer að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Meiri hl. nefndarmanna er þeirrar skoðunar, að minkun sú á innfluttu vörumagni, sem leitt gæti af notkun heimildarinnar, muni nema svo lítilli fjárhæð, að ráðstöfunin yrði þýðingarlaus fyrir verslunarjöfnuð landsins, og kæmi því ekki að haldi til gjaldeyrissparnaðar.“

Þetta sýnir skoðun meiri hl. nefndarinnar, en til þess að kljúfa ekki nefndina, þá varð það að samkomulagi að leggja það á vald stjórnarinnar, hvort hún notaði heimildina eða ekki. En meiri hl. ætlaðist til, að stjórnin notaði ekki heimildina, þótt önnur hafi nú raun á orðið.

Það er og því meiri ástæða til þess, að þingið gangi frá þessu máli nú, sem ráðuneytið sjálft virðist ekki vera algerlega á einu máli um það. — Hæstv. fjrh. (M. G.) sagði, að það væri örðugt að átta sig á þessari tvískiftingu nefndarinnar, og óskaði því helst, að deildin skæri hjer úr. En hæstv. atvrh. (P. J.) heldur því fram, að þegar sje búið að semja um þetta mál.

Jeg fæ ekki sjeð, að nál. gefi stjórninni tilefni til þess að nota heimildina, og það er auðsætt, að þeir nefndarmenn, sem töldu heimildina frá 8. mars 1920 þýðingarlausa, muni greiða atkv. með frv. nú.

Það stóð einnig nokkuð sjerstaklega á, þegar þetta nál. var samið. Þá var vantraustið á ferðinni, og menn bjuggust við, að önnur stjórn mundi hafa málið til meðferðar framvegis, og munu því hafa verið mildari í orðalagi en ella. Umr. frestað.