15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í C-deild Alþingistíðinda. (3203)

102. mál, bann á innflutningi á óþörfum varningi

Magnús Kristjánsson:

Jeg hefi þegar áður lýst skoðun minni í þessu máli og skal ekki fara að endurtaka það, sem jeg sagði þá.

Mjer finst óviðfeldið, að þar sem umræðum var frestað fyrir nokkrum dögum, þá skuli þær nú vera teknar upp aftur, þegar sá maður er fjarverandi, er bar fram rökstudda dagskrá um að vísa því frá. Jeg vildi því beina því til forseta, hvort ekki væri hægt að fresta atkvgr. um það, þar til sá þm. væri kominn, er bar dagskrána fram.

Jeg vildi svo minnast lítið eitt á ranghermi hv. þm. Dala. (B. J.), þar sem hann fleygði því fram, að verð þeirrar vöru, sem til mála gæti komið að banna innflutning á, myndi ekki nema meiru en hálfri miljón kr. Þetta er sagt alveg út í loftið, mjer er nær að fullyrða, að það sje 1% milj. kr. og jafnvel meira. (B. J.: Hv. þm. hefir þá ekki kynt sjer málið!). Jú, það er einmitt það, sem jeg hefi gert og það vandlega. (B. J.: Hv. þm. hefir þá ekki vit á því!). Það er lítið vit í að taka þetta eina ár, þegar lítið er flutt til landsins, og miða við það, en hv. þm. Dala. (B. J.) virðist ekki hafa svo mikið vit, að hann skilji það, að til þess að fá nokkurn veginn rjetta hugmynd um, þetta, verður að taka fyrir nokkur ár og miða við þau.

Jeg gat þess í upphafi, að jeg ætlaði ekki að fjölyrða um þetta, og ætla því aðeins að taka það fram einu sinni enn, að mjer virðist þessi fjármálastefna þessara manna, er að frv. standa, furðuleg, að jeg ekki segi glópskukend. Jeg skildi ekki betur en að fult samkomulag hefði orðið í nefndunum um það, að ef bráðabirgðalögin yrðu úr gildi feld, þá skyldi heimildarlögunum haldið. Og jeg teldi það ódrengilegt, ef nokkur þeirra manna, sem í nefndinni sátu, ljeði því atkvæði sitt, því að undir því mun búa eitthvað annað en að flm. telji það nauðsynlegt fyrir velferð þjóðarinnar í framtíðinni.