15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í C-deild Alþingistíðinda. (3207)

102. mál, bann á innflutningi á óþörfum varningi

Magnús Kristjánsson:

Hæstv. forseti gaf þá yfirlýsingu, að hann tæki ekki til greina áskorun um að fresta atkvæðagreiðslu um frv. En jeg vil aðeins geta þess, að jeg hefði ekki óskað eftir frestun á atkvæðagreiðslu um dagskrána, ef flm. hennar (J. A. J.) hefði verið viðstaddur.

Þá vil jeg geta þess, að mjer finst hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) vera algerlega sjálfum sjer samkvæmur í því að bera hjer í þessu máli einnig fram helber og rakalaus ósannindi.