09.04.1921
Neðri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í C-deild Alþingistíðinda. (3221)
104. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi
Jakob Möller:
Þegar frv. um sölu kirkjujarðarinnar Upsa var til 3. umr., þá gat jeg um, að jeg væri á móti því vegna þessa frv., sem hjer liggur fyrir. Það er sem sje ekki gott að gera upp á milli fleiri beiðna um samskonar efni. Þó jeg fyndi raunar ekkert sjerstaklega athugavert við Upsasöluna, þá eru nokkuð sjerstakar kringumstæður fyrir hendi á Siglufirði, sein gera sölu á Hvanneyri varhugaverðari.
Á Siglufirði er atvinnurekstur að miklu leyti í höndum útlendinga. Ef því kaupstaðarlóðin fer úr höndum ríkisins, þá er eigi trygging fyrir því, að hún komist ekki í þeirra hendur. Það munu flestir vera á einu máli um það, að nauðsynlegt sje að tryggja kaupstöðum og verslunarstöðum land til ræktunar. En jeg skil ekki, að ekki megi tryggja það á einhvern annan hátt heldur en gert er ráð fyrir í frv. þessu, t. d. með leigu, eins og algengast er hjer. Og þó ekki sjeu til nein lög um það nú, þá er sjálfsagt að semja þau, ef Siglfirðingar fara fram á það.