09.04.1921
Neðri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í C-deild Alþingistíðinda. (3228)

104. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi

Jón Baldvinsson:

Jeg hefi áður hjer í deildinni tekið skýrt fram, hvað fyrir mjer vakir í slíkum málum sem þessum. Hjer hafa verið 2 frv. á ferðinni, er stefndu í þessa átt, og eru þau nú orðin að lögum. Við umr. þeirra ljet jeg þess getið, að ákvæði ætti að setjast í lögin, að bæjarfjelögin eða hrepparnir mættu ekki selja slíkar eignir eða hluta þeirra einstökum mönnum, eða ef það yrði ekki að tryggja þá ríkissjóði að minsta kosti forkaupsrjett slíkra jarða, svo bygt yrði fyrir það, að jarðir, sem ríkissjóður hefði selt, kæmust í braskarahendur.

Hjer finst mjer vera um slíka stóreign að ræða, að ríkissjóður megi alls ekki selja hana, þótt til mála gæti komið, að hann seldi ýmsar aðrar jarðir. Það segir sig sjálft, að eftir að jörð eins og Hvanneyri í Siglufirði er komin úr höndum ríkissjóðs, er hún um leið orðin lausari fyrir, einkum þegar þess er gætt, að hægt er á einföldum hreppsnefndarfundi að ákveða, hvort selja skuli einstaka hluta jarðarinnar, eða hana alla. Það er hægra að koma slíkum samþyktum á, þar sem haldnir eru fundir vikulega, heldur en á Alþingi, sem ekki kemur þó saman nema einu sinni á ári.

Til viðbótar því, sem háttv. 1. þm Reykv. (Jak. M.) sagði, út af ummælum hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), þá skal jeg geta þess, að hjer í Reykjavík er sú stefna ofarlega á baugi að selja einstaklingunum hluta úr bæjarlandinu. Fyrir hverjum einasta bæjarstjórnarfundi liggja beiðnir í þá átt, þótt auðvitað sje, að mikið tíðkist að leigja lóðirnar. Og um erfðafestulöndin er það að segja, að í raun og veru er mikill hluti þeirra orðinn kvaðalaus eign einstaklinganna. Ef þetta land hefði verið eign ríkissjóðs, þá hefði ekki verið eins hægt um vik að búta það í sundur.

Því verð jeg að líta svo á, að eina tryggilega leiðin í þessu máli sje sú, að landið sleppi aldrei eignarhaldi á jörðum sínum eða landspildum, og hvað þessa jörð snertir, þá get jeg ekki trúað því, að nokkur ágreiningur sje í milli hv. þdm. um það, að hjer standi sjerstaklega á, og að Hvanneyri eða Siglufjörður megi aldrei lenda í braskarahöndum, hvorki innlendra manna nje útlendinga.