18.03.1921
Neðri deild: 26. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í B-deild Alþingistíðinda. (324)
38. mál, verslun með tilbúinn áburð og kjarnfóður
Frsm. (Þórarinn Jónsson):
Ákvæði frv. þessa eru ný í löggjöfinni. En nauðsynin fyrir að setja þessi ákvæði er brýn. Ýmiskonar svik hafa komið upp í vörum þeim, sem gengið hafa kaupum og sölum sem fóðurbætir. Um þetta hefir einatt verið kvartað, og oft gert að blaðamáli. Þessum tilgangi frv. er náð með því, að þegar tilbúinn áburður, eða fóðurbætir, er keyptur, er seljanda gert að skyldu að gefa út tryggingarskjal, þar sem tilkynt sje, hvernig varan sje, og hvert efnainnihald hennar er.
Getur kaupandi tekið eða látið taka sýninnihaldi hennar, ef þörf þykir.
Vel má raunar búast við því, að lög þessi verði fyrst um sinn að nokkru pappírsgagn, þar sem eins og stendur er ekki fyrir seljanda unt að gefa upp efnainnihald á sumum vörum, þar sem efnarannsókn er ekki til, en við hinu má jafnframt búast, að þetta lagist smámsaman, og undir öllum kringumstæðum ætti þetta strax að veita seljanda það aðhald, að hann ekki leiki sjer að selja skemda vöru, og verður því nefndin að telja, að það þegar í stað tryggi mikið rjett kaupandans.
Út í einstakar greinar frv. þýðir ekkert að fara frekar en jeg nú hefi gert. Þó skal jeg, um leið og jeg minnist á brtt., drepa á einstaka liði í 2. gr.
8. liður 2. gr. ræðir um lifur, sem seld er til fóðurbætis. Nefndin hefir komist að því hjá þeim helstu lifrarfræðingum, er skipa þetta þing, að hún sje illa fallin til sölu og ilt eða ómögulegt að ákveða nokkuð um samsetning eða efnishluta hennar. Myndi því aldrei vera hægt í tryggingarskjali að gera þetta tæmandi. Þrátt fyrir þetta, hefir þó nefndin ekki viljað fella úr þennan lið, því vel getur kaupandi og seljandi komið sjer saman um kaupin á einhverjum grundvelli. Undir 10. liðnum, um síldarmjöl, er að eins tekið fram, hvort það sje unnið úr nýrri eða saltaðri síld. Þar er ekki gert ráð fyrir því, að það skemmist í gerðinni, sem einatt vill þó verða, og er það því oft bæði brent og trjeð malað saman við. En ef því líkt kemur fyrir, telst það auðvitað sem skemd vara, og fellur þá undir síðustu málsgrein 2. gr.
Breytingartillagan við 1. og 2. gr. byggist á því, að frv.greinarnar ákveða, að þar sem ekki sje gefið út tryggingarskjal eða skriflegur samningur, þá gildi munnlegt umtal. Þetta telur nefndin alveg þýðingarlaust, og myndi að eins leiða til reksturs og málaþrætu, og ekkert yrði sannað.
Leggur því nefndin til, að þar sem ekki sje fyrir hendi tryggingarskjal eða skriflegur samningur, þá sje ætíð litið svo á, að varan sje seld sem óskemd vara, og hvílir sönnunarskyldan á seljanda. Er þetta nýtt aðhald fyrir hann, sem tryggir kaupandann.
Fleira sje jeg ekki að þýði að taka fram, að svo stöddu.