27.04.1921
Neðri deild: 56. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í C-deild Alþingistíðinda. (3275)

118. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka og ráðstafanir á gullforða bankans

Jón Baldvinsson:

Jeg var búinn að slá varnagla um fylgi mitt við þetta frv. áður, svo að jeg hefði ekki þurft að taka til máls aftur, en ummæli hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) knúðu mig til þess. Mjer finst, að í orðum hans liggi lítilsvirðing í garð þess bankastjóra Landsbankans, sem í dag hefir birt í blaði álit sitt á þessu máli. Því þó að það sje kann ske ekki alveg að forminu til rjett skilið, að Íslandsbanki sje útibú frá Privatbankanum, þá verður það þó samt svo í reyndinni. Privatbankinn sjer honum fyrir lánum og „representerar“ þá útlendu eigendur Íslandsbanka, og ræður að miklu leyti starfsemi hans. Þess vegna finst mjer, að þessi ummæli bankastjórans segi í rauninni ekki annað en það, sem hvert mannsbarn veit, sem annars er nokkuð inni í bankamálunum, og því ástæðulaust að vita þau hjer á Alþingi, auk þess sem einmitt þessi bankastjóri er sá maðurinn, ásamt öðrum í stjórn Landsbankans, er hefir verið fjármálaljós landsins á þessum síðustu og verstu tímum og bjargað landinu því nær frá gjaldþroti.

Og því minni ástæða var hjá hv. þm. (J. Þ.) að afsaka þennan mann með því, að hann væri af erlendu bergi brotinn og því eins og gestur hjer og ókunnugur öllu, og þess vegna bæri ekki að taka orð hans alvarlega. Þegar þess er nú gætt, að þessi maður hefir verið hjer starfandi mestan hluta æfi sinnar og nú um hríð verið skipaður bankastjóri við banka þjóðarinnar, þá virðast þessi orð hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) í alla staði móðgandi og ósæmileg, og af því hins sama gætti í ræðu hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.), en þó hóglegar, þá er full ástæða til að mótmæla því á sama vettvangi, sem það er fram borið á.

Þetta mál, frv., sem nú liggur fyrir, ætti að vera hægt að ræða án þess að blanda inn í það bankastjórum Íslandsbanka og Landsbankans.