29.04.1921
Neðri deild: 58. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í C-deild Alþingistíðinda. (3278)
118. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka og ráðstafanir á gullforða bankans
Eiríkur Einarsson:
Jeg ætlaði að svara nokkrum orðum því, sem til mín hefir verið kastað undir umr. málsins.
Hæstv. fjrh. (M. G.) sagði, að jeg lofaði stj.frv., en vildi þó ekki hafa það. Þetta er rjett að því leyti, að jeg vildi tína það til, er jeg teldi frv. til gildis, og átti jeg þar einkum við stefnu þess að koma seðlaútgáfurjettinum í þjóðlegt og skipulegt horf. Hinu hefi jeg gert grein fyrir, hverjir þeir höfuðannmarkar eru, sem gera frv. alveg óaðgengilegt. Sami hæstv. ráðherra hreyfði ásökunum í garð okkar nefndarmanna fyrir seinan gang í nefndarstörfum.
En ef jeg vildi fara að svara slíku, yrði það ekki aðeins afsökun nefndarinnar, heldur ásökun á hendur stjórninni, því að mál það, er hjer liggur fyrir, er hennar mál, og ber hún ábyrgð á uppruna þess og endalokum. Nefndin hefir ekki fyr en seint og síðarmeir getað skilað málinu af höndum sjer með áliti, og stafar það eingöngu af ónógum undirbúningi stjórnarinnar, en jeg vil ekki tefja umr. nú, með því að fara lengra út í það mál.
Þá vildi hæstv. atvrh. (P. J.) bera brigður á það, að peningamálanefndin hafi flýtt störfum sínum eða hagað þeim eins og vera bar. Þessu er hinu sama að svara og tekið er fram áður um samskonar athugasemdir frá hæstv. fjrh. (M. G.).
Hæstv. atvrh. (P. J.) sagði eitthvað á þá leið, að jeg hefði sagt, að stjórnin hefði átt að leggja fyrir þingið alt það, er gæti komið Íslandsbanka úr kreppunni. Þetta er annaðhvort misheyrn eða misskilningur hæstv. ráðherra (P. J.). Það sem jeg sagði, var vitanlega í þá átt, að stjórnin hefði átt að gera það, sem í hennar valdi stóð, til þess að bjarga þjóðinni úr fjárkreppunni. En svo langt er ekki komið, að þjóðin sje hið sama og Ísl.banki, þótt sumir kunni að vilja blanda því saman.
Hæstv. atvrh. (P. J.) ljet það í ljós, að jeg vildi gera meiri kröfur til stjórnarinnar en sjálfs mín, og studdi það með því, að lítið lægi eftir nefndina, og jeg væri þar að einhverju leyti einn um mínar skoðanir. Vil jeg því spyrja hæstv. ráðherra (P. J.), hvort hann telur það endilega þurfa að fara saman, að flytja gott mál og vera á sama máli og fjöldinn. Það getur ekki verið meining hans, og auk þess er það ekki rjett, að jeg sje þar einn á bát. Eins og jeg hefi bent á geri jeg vitanlega miklar kröfur til stjórnarinnar í þessum málum. Það er hún, stjórnin, sem á að veita þeim forstöðu frá upphafi til enda, þótt þingnefnd segi álit sitt um það, sem þar er lagt til og undirbúið af stjórninni.
Lög og reglugerðir bankans sýna þetta best, enda liggur það í hlutarins eðli. Þá þótti hæstv. atvrh. (P. J.) það enn fremur of stór krafa, að Íslandsbanki fengi fyrirfram vissu um lánstraust sitt. Jeg hefi áður sýnt fram á, hve nauðsynlegt það er, ef nú ætti að semja við hann, að fá sem allra áreiðanlegasta vitneskju um þetta. Um rannsóknina þarf ekki að tala; hún er sjálfsögð, ef ríkið ætti að hætta þangað fje sínu. Upplýsingar stjórnarinnar í þessum efnum hafa reynst ljettvægar.
Það hefir kveðið við úr ýmsum áttum, að umræddur banki myndi .,loka“, ef hann fengi ekki óskir sínar uppfyltar. Þetta er mjög óviðeigandi orðatiltæki af munni þeirra manna, sem tala máli bankans, og benda mjög í þá átt, ef á rökum eru bygð, að hagur stofnunarinnar sje erfiður. Er ekki þetta, að hóta lokun, eins og sumir vinir bankans hafa á orði, alveg samsvarandi því, er maður, sem kominn er í kröggur, hótar „að gefa sig upp“, ef hann fái ekki frest eða hagstæða kosti hjá skuldheimtumönnum sínum.
Ef það er ætlunin að bendla fjárhag bankans meir við fjárhag landsins en þegar er orðið með viðskiftum hans við landsmenn, þá bendir alt á hið sama, að slíkt þarf vel að rannsakast. Lánstraust landsins og væntanlegur lánsútvegur er dýrmæti, sem ekki má ráðstafa af neinu handahófi.
Jeg hefi alveg nýlega lesið grein í merkilegu fjármálablaði norsku, „Farmand“ í Kristjaníu. Blaðið er frá fyrstu dögum þ. m. Þar segir meðal annars um viðskiftaöryggið nú á tímum, að jafnvel rótgróin fyrirtæki eða stofnanir (grundsolide instituter), er eigi bæði hlutafje og sjóði, geti hæglega oltið á þessum tímum af því, hvað eignir þeirra og tryggingar að öðru leyti sjeu í mikilli óvissu. Það sem sýnist geta staðið, sje fallvalt á mörgum sviðum um þessar mundir. Slíkar bendingar um öryggi viðskifta og stofnana frá nágrannaríkinu ættu að vekja okkur til umhugsunar.
Einn af þeim hv. þdm., er heldur fram, að nú eigi að skipa seðlamálinu til frambúðar, sagði sem svo, að ef við drögum það eitt ár enn, myndi lenda í sama aðgerðarleysinu. Slíkt er vantraust á stjórninni, hver sem hún verður, því hún á að undirbúa málið.
Að lokum vil jeg geta þess, að þar sem aukaseðlaútgáfu hefir fyrirfarandi ár verið skipað til bráðabirgða hvað eftir annað, væri mjög undarlegt, ef endilega ætti að fara að flýta þessari frambúðarúrlausn nú, er óvissan er allra mest um traustleika samningsaðiljans og alt í óvissu um það, hvort við hefðum fremur gagn eða ógagn af slíkum aðgerðum, eins og sakir standa nú.