29.03.1921
Neðri deild: 29. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (3353)
85. mál, eftirlit með skipum og bátum
Frsm. (Magnús Kristjánsson):
Jeg get ekki skilið, að nokkur hafi getað haft ástæðu til að ætla, að í nál. eða framsögu minni lægi nokkur ásökun til stjórnarinnar um, að hún hefði ekki lagt frv. fyrir þingið. Ef einhver hefir skilið orð mín eða till. svo, þá er það alger misskilningur.
Spurningin er um það, hvort tilskipunin eigi ekki að koma til framkvæmda þegar í stað, og það áður en stjórnin og nefndin eru búnar að koma sjer saman um frv.
Hæstv. atvinnumálaráðherra (P. J.) leit svo á, að hjer lægi fyrir áskorun til stjórnarinnar, eða að minsta kosti ósk um, að stjórnin tæki frv. nefndarinnar til flutnings. En það er misskilningur. Sjávarútvegsnefnd hefir ekki komið til hugar að ætlast til þess, að stjórnin færi að bera fram frv., ef hún telur það óþarft eða varhugavert, eða getur ekki fallist á það af einhverjum ástæðum.
Aðalatriðið fyrir sjávarútvegsnefnd er það, að tilskipunin komi fram, og til þess þarf engar lagabreytingar. Við viljum ekki, að það dragist óhæfilega, því við erum sannfærðir um, að það verði til stórra bóta, þegar tilskipunin um eftirlitið fer að verka.
Jeg vil og geta þess, að sjávarútvegsnefnd áleit frv. nefndarinnar þannig, að ekki gæti komið til nokkurra mála að taka það óbreytt. Hitt er annað mál, að ef stjórnin gæti aðhylst stofnun nýs embættis í þessu skyni, þá mundi deildin vafalaust treysta stjórninni til þess að bera fram frv., og það betra en frv. nefndarinnar.
Jeg vona, að hjer sje nú enginn misskilningur á ferðinni lengur milli mín og hæstv. atvinnumálaráðh. (P.J.). Mjer fanst hann vera dálítill áðan, þar sem hæstv. atvinnumálaráðherra virtist skilja till. og orð mín svo, að hjer væri verið að leggja að stjórninni að stofna nýtt embætti. Það var alls ekki meiningin.
Hjer er aðeins sagt það, að þörf sje á meira eftirliti, og skorað á stjórnina að gefa út tilskipunina samkv. lögunum frá 1912, og svo hitt, að stjórnin taki til íhugunar stofnun nýs embættis á þeim grundvelli, sem hún telur heppilegastan, án þess að við viljum nokkuð gefa það í skyn, að álit nefndarinnar sje heppilegasta lausnin á því máli.