15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (3386)
103. mál, mat á aðfluttum kornvörum
Hákon Kristófersson:
Jeg get að því leyti gert orð hv. 2. þm. Reykv. (J. B.) að mínum, að jeg er hv. flm. (S. St.) þakklátur fyrir till. því að skemdir á kornmat eru nú oft orðnar svo óhæfilega miklar, að full þörf er á því, að löggjafarvaldið taki í taumana. Annars get jeg að ýmsu leyti tekið undir með hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), t. d. um það, hvernig stjórnin ætti að snúast við till.
Út af ummælum hv. flm. (S. St.) vil jeg þó taka það fram, að jeg sje enga ástæðu til þess að fela lögreglustjórum þetta eftirlit, enda hefi jeg litla trú á þeim til þess. Miklu nær væri að fela það hjeraðslæknum, og þeir ættu að hafa næga þekkingu til þess, því ekki mun það rjett, sem haldið hefir verið fram, að sjerfræðisrannsókn þurfi í tilraunastofu, nema í sjerstökum undantekningartilfellum. Annars vænti jeg þess, að hv. deild sýni þessu máli allan sóma og stjórnin undirbúi það síðan eftir föngum, þó að þingið hafi auðvitað óbundnar hendur gagnvart því, sem stjórnin kynni að koma með, og þarf jeg svo ekki að fjölyrða frekar um þetta að sinni.