12.05.1921
Efri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (3423)

138. mál, ábúð jarða

Flm. (Einar Árnason):

Af því jeg geri ekki ráð fyrir, að till. þessi mæti neinni mótspyrnu hjer í deildinni, læt jeg ekki fylgja henni nema örfá orð.

Lög um bygging, ábúð og úttekt jarða eru nú hartnær 40 ára gömul, svo það er í rauninni ekki undarlegt, þótt þau sjeu nú í mörgum greinum úrelt orðin og á eftir tímanum, jafnmiklar breytingar og orðið hafa á framkvæmdum manna og búnaðarháttum síðan lög þessi voru samin. það er líka alllangt síðan fór að brydda á óánægju út af ábúðarlögunum, og má vafalaust telja það eina aðalorsökina til þess, að menn hafa sótt svo fast að fá keyptar jarðeignir ríkisins. Misjöfn ráðsmenska yfir jörðunum mun og hafa valdið nokkru þar um. Úr þessari óánægju þarf að bæta. Það þarf að gera lögin þannig úr garði, að leiguliðarnir finni hvöt hjá sjer til þess að hlynna sem best að ábúðarjörð sinni, — að þeim sje það ljóst, að alt það, sem þeir gera jörðinni til bóta, sje sjálfra þeirra hagur. Löggjöfin þarf því að miða að því, að hagsmunir jarðarinnar og leiguliðans fari saman.

Óhætt er að segja, að byggingar til sveita sjeu óviðunandi og að ekki verði hjá því komist að endurbæta þær stórum á komandi tímum. Enda er almenningi orðið þetta svo ljóst, að sterk hreyfing er vöknuð fyrir því að hrinda byggingarmálinu í betra horf. Þetta þarf ábúðarlöggjöfin að taka til greina og greiða sem best úr. Sama má segja um ýmsar jarðabætur, svo sem vatnsveitingar, nýyrkju, girðingar o. fl. Að sumu leyti vantar fyrirmæli um þetta í ábúðarlöggjöfinni, og að sumu leyti eru ákvæðin óheppileg, bæði að því er lýtur að byggingum og jarðabótum. Þetta hafa vafalaust allir fundið, sem fengist hafa við úttekt jarða.

Í till. hefi jeg drepið á erfðaábúð. Jeg skal nú ekkert um það segja, hvort það muni tiltækilegt að lögbjóða hana, en rjett finst mjer, að slíkt sje athugað.

Það er tæpast hægt að búast við því, að einstakir þingmenn hafi tök á áð endurskoða slíkan lagabálk sem þennan, svo vel sje. Þess vegna verður að ætla stjórninni þetta verk, og jeg vænti þess, að hún láti það ekki undir höfuð leggjast.