18.05.1921
Neðri deild: 72. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (3438)
115. mál, hrossasala innanlands
Gunnar Sigurðsson:
Jeg skal byrja á því að lýsa ánægju minni yfir gerðum hv. landbúnaðarnefndar í þessu máli, því hún hefir gengið allröggsamlega að því, þótt jeg hafi ýmislegt við gerðir hennar að athuga, eins og jeg mun síðar víkja að. Það hefir sýnt sig, að það þarf rannsóknar á því. Hæstv. atvrh. (P. J.) taldi, að ekki ætti við að ræða þetta mál á þingi, en hann hefir fyr sagt þetta um mál, sem hafa snert hann óþægilega. Þetta mál varðar vissulega alla landsmenn, og þingið á að fylgjast vel með því.
Hv. landbúnaðarnefnd hefir ekki farið nógu langt aftur í tímann. Það má ekki skella allri skuldinni á þá, sem hafa haft þetta með höndum síðustu ár. Það var Sambandi íslenskra samvinnufjelaga að þakka, sem gert var í þessu máli síðastliðið ár, því að hæstv. stjórn dró málið á langinn þangað til það skarst í leikinn og fór að herða á stjórninni. Samband íslenskra samvinnufjelaga kom því síðan til leiðar, sem gert var síðastliðið ár.
Það varð að taka sömu markaðshaldara og með sömu kjörum og áður, enda vissi S. í. S. ekki um samninga aðalstarfsmannanna við hrossasöluna fyr en undir haust.
Athugasemd hv. 2. þm. Húnv. (þór. J.) eru orð í tíma töluð, þar sem hann leggur áherslu á, að málinu sje komið í betra horf. Það atriði virðist ekki vera nógu ljóst fyrir nefndinni, að sýslubúar og sýslufjelög skifti sjer ekki af hrossasölunni út á við, en aðeins inn á við, en það er nauðsynlegt, að hún láti söluna út á við alveg afskiftalausa.
Vörn hæstv. atvrh. (P. J.) var mest þankabrot og þankaslitur. Hann taldi markaðshaldarana hafa haldið vel áfram. Eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið, hafa þeir t. d. haft dagleið frá Grund í Skorradal að Þyrli á Hvalfjarðarströnd. Það get jeg ekki kallað gott áframhald.
Jeg skal geta þess af kunnugleika, því jeg hefi sjálfur fengist við hrossaútflutning, að jeg tel ekki heppilegt að hafa nesin, Geldinganes og Álfsnes, eingöngu fyrir eins mörg hross og verið hefir að undanförnu. Það hefir verið ofsett í þau.
Jeg vil þá víkja að verðmismun hrossanna af Norður- og Vesturlandi annars vegar og Suðurlandi hins vegar. Jeg vil átelja hæstv. stjórn fyrir það, að hún hefir neitað að láta af hendi fullnægjandi skýrslur um þetta atriði, og vil jeg spyrja hana, hvers vegna hún neitar um þær skýrslur, sem víst er um að hún hefir haft og jeg hefi nú loks náð í mínar hendur. Þær sýna, að sunnanhrossin hafa verið keypt fyrir 10–20 kr. minna stykkið heldur en vestan- og norðanhrossin. Öll þvæla hæstv. atvrh. (P. J.) um hæðarstig og verðstig, sem jeg satt að segja botnaði ekkert í og býst ekki við, að neinn, og þá ekki hann sjálfur, hafi botnað í, skýrði ekkert þetta atriði. Það þarf ekki skarpan skilning nje sjerþekkingu til að bera saman skýrslurnar og bera saman verð á hrossum, sem hafa jafnan aldur og hæð. Ef hæstv. atvrh. (P. J.) finst þetta sanngjarnt, þá er það fjarstæða. Ef það er af ranglæti, að hann heldur þessu fram, þá verð jeg að átelja það harðlega. Sunnlensku hrossaseljendurnir hafa orðið að bera að jöfnu við hina allan geymslu-, gæslu- og rekstrarkostnað, og hafa gert það möglunarlaust, þó að það sje vitanlegt, að því fylgir miklu minni kostnaður og erfiðleikar að reka hross austan úr sveitum til Reykjavíkur heldur en að norðan og vestan. Jeg er enginn hreppapólitíkus að eðlisfari, en jeg verð að segja, að þegar Sunnlendingar ofan á þetta fá 10–20 kr. minna fyrir hvert hross, þá sje ekki lengur hægt að þola mátið. Jeg fullyrði, að þetta misrjetti hefir átt sjer stað, og vitna jeg þar til hv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.) og hv. þm. Borgf. (P. O.) og hv. 1. þm. Eyf. (St. St.), og jeg krefst þess, að úr þessu verði bætt hið bráðasta. Þetta misrjetti hefir altaf verið síðan einkasalan byrjaði, en jeg geri aðeins kröfu um uppbót fyrir síðasta ár. Jeg ætla að bera fram till. til þál. um þetta, og gerir hún þá minstu kröfu, sem hægt er að gera. Jeg vona, að allir geti fallist á þetta, því að hreppapólitík á alls ekki að komast hjer að. Jeg get líka minst á það, að hross að sunnan reyndust betri í fyrra heldur en norðan- og vestanhrossin, samkvæmt skeytum frá kaupendum, svo að því síður ætti að vera ástæða til að borga þau ver.
Jeg vil þá lesa till. upp. Hún hljóðar svo:
„Neðri deild Alþingis ályktar að skora á landsstjórnina að láta rannsaka nákvæmlega verðmismun þann, er verið hefir á hrossum norðanlands og sunnan síðan landseinkasalan hófst á hrossum, og að hlutast til um, að Sunnlendingar fái þann mismun, að minsta kosti fyrir síðastliðið ár, hjá þeim hjeruðum, er ábatast hafa á verðmismuninum.“
Svo er varatill. með þeirri breytingu, að í stað þess, að hjeruðin, sem græða á mismuninum, greiði uppbótina, á að greiða hana úr sameiginlegum sjóði hrossasölunnar, því að mjer er kunnugt um, að hann er til og að í honum eru á fjórða þúsund krónur.