11.04.1921
Neðri deild: 40. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

38. mál, verslun með tilbúinn áburð og kjarnfóður

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Það var aðallega út af lágmarks-breytingartill. nefndarinnar við 1. gr., að jeg kvaddi mjer hljóðs.

Það er rjett, að stjórnin færði upp lágmarkið á þeim vörum, sem heimtuð er trygging fyrir. Það var, ef jeg man rjett. 300 kg. hjá Búnaðarfjelaginu. Það, sem stjórnin meinti með þessu 500 kg. takmarki, var það, að hún bjóst við að menn myndu trassa að útvega sjer þessi tryggingarskírteini, hvað sem lögunum liði, þegar um kaup væri að ræða í smærri stíl, eða neðan við þetta 500 kg. lágmark. Það eru að vísu til menn, sem kaupa innan við 500 kg. af tilbúnum áburði, en fáir held jeg þeir sjeu. En úr því að þetta var fært niður, virðist mjer sem nokkur ástæða hefði verið til að færa líka niður lágmarkið í 2. gr. Það er um kraftfóðrið. Það kaupa menn að jafnaði í smærri stíl, að þyngdinni til, að jeg hygg.

Annars ætlaði jeg ekki að gera lágmarksbreytingar þessar að neinu kappsmáli, en vildi að eins benda á þetta. Viðvíkjandi orðabreytingum nefndarinnar sje jeg enga ástæðu til að tala.

En um síldina er það að segja, að aldrei verður hægt að sannprófa það, hvað mikið salt er í tunnunum, því saltið verður oftast að pækli og ilt að rannsaka það.