20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í D-deild Alþingistíðinda. (3480)
132. mál, endurskoðun fátækralaganna
Flm. (Jón Baldvinsson):
Jeg býst ekki við, að þessi till. ætti að vekja svo miklar umræður hjer í deildinni. Þetta mál var eiginlega þrautrætt hjer, þegar breytingin á fátækralögunum var til umræðu, en mjer skildist, að hv. þm. þá ekki vildu ljá málinu atkvæði sitt, þar sem þeim ekki væri með öllu ljóst, hver áhrif breytingar á svo víðtækum lagabálki sem fátækralögunum gætu haft í framkvæmdinni, og svo af hinu, að hæstv. stjórn hafði ekki enn athugað málið til hlítar. Nú var á þinginu 1917 samþ. þál. um að skora á stjórnina að láta fara fram ítarlega endurskoðun á þessum lögum, og þessi till. er aðeins fram komin til þess að herða á stjórninni. Er vonandi, að hún beri þann árangur, að á næsta þingi sjáist einhverjar till. frá stjórninni í þessu máli, enda gat hæstv. forsrh. þess um daginn, að þess yrði ef til vill ekki langt að bíða, að stjórnin tæki málið til rannsóknar.