20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (3489)

141. mál, löggilding baðlyfs

Flm. (Pjetur þórðarson):

Árangurinn af sauðfjárböðunum hjer á landi hefir ekki orðið eins mikill og skyldi. Það hafa smám saman verið gerðar ráðstafanir til að baða sauðfje árlega, og að síðustu var það talin slík nauðsyn, að það var lögboðið. Jafnframt var ákveðið, hverjar baðlyfstegundir ætti að nota.

í framkvæmdinni hefir þessi lagasetning ekki reynst betur en svo, að ekki hefir tekist að halda fjárkláðanum í skefjum. Reynslan hefir sannað, að flestar hinar lögboðnu tegundir hafa ekki verið einhlítar. Það er alkunnugt, að kláði hefir náð útbreiðslu í ýmsum sýslum, þrátt fyrir hina lögskipuðu böðun. Þau baðefni, sem lögskipuð hafa verið, hafa reynst of áhrifalítil til útrýmingar kláða. Þau eru góð fyrir ullargæði, en ónýt gegn kláða.

Það baðefni, sem reynst hefir best gegn kláða, er Coopers-baðduft, sem till. getur um. Sýslunefnd Mýrasýslu hefir skorað á mig að flytja þessa till. hjer á þingi, til þess að benda mönnum á að nota þetta baðlyf, að minsta kosti jafnhliða öðru. Það er náttúrlega ekki víst, að allir sjeu sammála um þetta á landinu, en hjer er ekki heldur farið fram á annað en að leyfa þetta jafnframt öðru. Jeg get sagt með sanni, að þessi skoðun er ekki eingöngu í Mýrasýslu, heldur er hún talsvert almenn. Þess vegna eru líka meðflytjendur mínir að till. mjög áfram um, að till. verði samþykt.

Jeg vona, að hv. deild fallist á till. og samþ. hana eins og hún liggur fyrir.