20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (3503)

146. mál, skaðabótagreiðsla út af hrossakaupum landsstjórnarinnar sunnanlands

Flm. (Gunnar Sigurðsson):

það er búið að ræða þetta mál, og það hefir komið fram, að auk þess, sem Sunnlendingar hafa verið látnir greiða kostnað að jöfnu við Norðlendinga, sem ekki getur talist sanngjarnt, hafa þeir fengið lægra verð fyrir hross sín. það getur verið, að þetta hafi verið af misskilningi gert, en síðastliðið ár er því þó varla til að dreifa. Jeg vil ekki ganga slyppur frá borði í þessu máli, sökum þess, að hjer er um sanngirnis- og rjettlætiskröfu að ræða. Og þó að oft sje erfitt að sækja rjettlæti í greipar þessarar hv. deildar, þá vona jeg, að hún sinni þessari kröfu. Það minsta, sem hægt er að fara fram á, er, að sjóði þeim, sem safnast hefir saman, verði skift milli þeirra, sem órjetti hafa verið beittir. Hann nemur 3 þús. kr., og verður því uppbótin ekki nærri því eins mikil og hún ætti að vera í raun og veru. Verði þetta felt, en það væri gert þvert ofan í alt vit og sanngirni, verð jeg að skoða það sem svo, að beinst sje að mjer persónulega.