02.03.1921
Efri deild: 12. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í D-deild Alþingistíðinda. (3554)
60. mál, viðskiptamálanefnd
Flm. (Halldór Steinsson):
Það þýðir ekki að vera margorður um þessa till., en jeg vildi þó í fáum dráttum gera grein fyrir tilgangi hennar.
Eins og kunnugt er, hefir nú um hríð verið mesta ólag á viðskiftahögum vorum. Dýrtíðin kom sem afleiðing styrjaldarinnar, en fyrstu ár stríðsins hjelst verð á innlendri og útlendri vöru nokkum veginn í hendur. Nú er aftur á móti svo komið, að íslenskar afurðir eru í lágu verði eða því sem næst óseljanlegar, en útlend vara hefir aldrei dýrari verið. Fyrir því hefir orðið þurð á gjaldeyri erlendis. Þessu hugðist stjórnin að bæta úr með innflutningshömlunum. En það er margra manna mál, að þær hafi ekki náð tilgangi sínum. Það gat komið til mála að takmarka innflutning á óþarfavörum, en takmörkun á innflutningi nauðsynja verður að fara varlega í.
Raddir hafa heyrst um það, að þessar hömlur hafi komið misjafnt niður á kaupsýslumönnum, að ekki hafi verið samræmi í starfi viðskiftanefndarinnar. Jeg skal ekki dæma um það. En oft mun það hafa verið látið ráða um veitingu innflutningsleyfa, hvort landsverslunin þyldi samkepnina eða ekki af nýjum innflutningi. Landsmenn hafa þannig orðið að súpa seyðið af misjafnlega viturlegum ráðstöfunum landsverslunarinnar.
Hjer liggja nú birgðir af dýrum vörum hjá kaupmönnum, en samskonar vörur má fá miklu ódýrari erlendis. Kaupmenn yfirleitt skilja rás viðskiftalífsins og vita, að vörur lækka ef leyfður er innflutningur. Landsverslunin og fáeinir aðrir vilja þó hafa höftin. Vitanlega verður halli á þeim birgðum, sem fyrir eru, ef leyfður er innflutningur. En þá vil jeg spyrja: Hvort er heppilegra, að nokkrir einstaklingar bíði halla, eða að öll þjóðin skaðist meðan seldar eru dýru birgðirnar? Mjer blandast ekki hugur um, að hjer verður þjóðarhagurinn að sitja fyrir hag, einstaklinganna.
Um landsverslunina hafa verið ærið misjafnir dómar. Sumir töldu hana nauðsynlega í stríðsbyrjun, og telja hana nauðsynlega enn, og jafnvel heppilegt að hafa hana framvegis. Á þeirri skoðun virðist hæstv. stjórn vera, eftir þeim frv., sem hún hefir lagt fyrir Alþingi. Aðrir líta svo á, að hún hafi verið ónauðsynleg fram til ársins 1916, en átt rjett á sjer úr því til stríðsloka. Eftir lok ófriðarins hafi hún verið óþörf og sje nú meira en óþörf, því með ýmsum sjerrjettindum, sem hún fær, hafi hún lamað viðskiftalíf landsins og aukið viðskiftakreppuna. Þegar menn eru svo ósammála um jafnstórt atriði, þá virðist ekki vanþörf á, að Alþingi rannsaki þetta og yfirvegi. Og svo er til ætlast, að það verði aðalverk nefndarinnar að rannsaka landsverslunina og viðskiftahöftin.
Þess er ekki getið í till., hve marga menn eigi að kjósa í nefndina. Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að kosnir verði 5 menn og verði viðhöfð listakosning. Leyfi jeg mjer því að afhenda forseta lista með 5 nöfnum.