02.03.1921
Efri deild: 12. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í D-deild Alþingistíðinda. (3558)
60. mál, viðskiptamálanefnd
Guðjón Guðlaugsson:
Þetta mál er nú ekki annað en að skipa nefnd, og virðist þó vera þrætuepli, að minsta kosti í hv. Nd. Jeg tel rjett, að nefndin verði skipuð, ef verða mætti til þess að komast að sannleikanum um landsverslunina og viðskiftamálin.
Jeg heyrði á ræðu hv. flm. (H. St.), að þess var þörf. Hann talaði um, að landsmenn sypu seyðið af landsverslun. Jeg kem þessu nú ekki í mitt höfuð og því síður, sem jeg hefi komist betur í kynni við landsverslunina. Jeg hefi ekki getað fundið þetta beiska seyði, sem landsverslunin á að hafa bruggað landsmönnum. Það er ekki hún, sem skapar dýrtíð í landinu. Það er hún, sem selur vörur með sanngjörnu verði. Það hefi jeg komist að raun um við að hafa hlotið þann heiður að vera skipaður í verðlagsnefnd þessa bæjar, sem síðar hefir náð til alls landsins. Við höfum sent fyrirspurnir um vöruverð víðs vegar um lönd og fengið svör gegnum sendiherra voru í Kaupmannahöfn. Þegar þetta hefir verið rannsakað, þá hefir það komið í ljós, að landsverslunin hefir jafnan selt með sanngjörnu verði, og verður ekki það sama sagt um allar aðrar verslanir, eftir að hafa borið saman innkaups- og kostnaðarreikninga á aðra hlið og útsöluverðið á hina.
„Þá var mörgu logið“, stendur í „Heljarslóðarorustu“ Gröndals, og á það fyllilega við um ýmislegt, sem borið var fram við síðustu þingkosningar hjer í Reykjavík, og ekki síst ýms ummæli manna um landsverslunina og svo viðskiftahömlurnar, sem jeg skoða ekki nema eina hömlu, sem sje viðskiftanefndina.
Það hefir verið tekið fram, og er alveg rjett, að viðskiftanefndin hafi í byrjun haft fullan rjett til þess að hindra innflutning á vörum inn í landið, en nú sjeu slíkar hömlur ónauðsynlegar síðan vörur þessar fóru að lækka erlendis. Jeg er þar á þeirri skoðun, að ekki verði dregin af því sú ályktun.
Verkahringur hennar hefir að vísu þrengst við, að vörur fóru að falla í verði erlendis, en þar fyrir finst mjer órjett að afnema nefndina. Jeg álít, að hún hafi mjög vandasamt starf með höndum. Hún á að ákveða, hvað er nauðsynjavara og hvað ekki, og þeim nauðsynjavörum, sem mikið er til af í landinu, á hún að veita takmarkað innflutningsleyfi á og lækka verð á þeim vörum, sem landsverslunin hefir. Verðlagsnefndin hefir átt mjög örðugt með að ákveða nákvæmt verð á ýmsum nauðsynlegum þurftarvörum, svo sem álnavöru ýmiskonar, fatnaði, skófatnaði o. fl. Því þó að nefndin hafi aflað sjer upplýsinga um það, hvað t. d. fatnaður og skófatnaður kosti á erlendum markaði, þá eru vörugæði og efni þessara vara svo mjög breytilegt, að ókleift er að ákveða verð á þeim eftir þeim upplýsingum. Verðlagsnefndinhefir komist það lengst í þessu efni að fá kaupmenn til þess að sýna kaupreikninga sína yfir þessar vörur og leggja á hæfilegar prósentur eftir þeim.
Þá er ein leiðin til þess að færa niður verðið sú að gefa öllum frjálst leyfi til að flytja inn þær vörur, sem eru að falla í verði erlendis, því jeg er viss um það, að það kemur vöruverðinu best niður.
Hv. flm. (H. St.) sagði, að hagur einstaklingsins eigi að sitja fyrir hag landsverslunarinnar. En ekkert fjelag eða stofnun er til í landinu, sem ekki samanstendur af fleiri eða færri einstaklingum, svo að ekki verður af því dregin nein ályktun um það, hvort hagur almennings er fyrir borð borinn eða ekki. En það er hagur almennings eða neytendanna, sem landsverslunin hefir fyrir augum.
Mjer fanst hv. þm. (H. St.) benda til þess, að viðskiftanefndin og jafnvel stjórnin hafi veitt nokkrum einstaklingum ívilnun með innflutning o. fl. Jeg kannast ekki við, að það sje rjett. Hitt kann að vera rjett, að viðskiftanefndin hafi veitt þessum innflutningsleyfi, en ekki hinum, jafnvel þótt um svipað vörumagn og vörutegundir hafi verið að ræða. Getur og skeð, að annar hafi haft gjaldeyri til reiðu í erlendum banka, og sömuleiðis að annar hafi komið fyr en hinn, svo að þess vegna hafi sá síðarnefndi orðið að sitja á hakanum. Alt þetta verða menn að hafa í huga, þegar þeir dæma um störf viðskiftanefndar og þær misfellur, sem vitanlega altaf verða á starfi slíkrar nefndar. Þær eru mannlegar yfirsjónir, sem henda allar stjórnir og allar nefndir hvar sem er.
Jeg sný mjer svo aftur að landsversluninni. Það kom fyrir, að verðlagsnefndin setti hámarksverð á rúgmjöl, 60 kr. á tunnuna, fyrst þegar hún byrjaði að starfa. Ekki einn einasti kaupmaður seldi þá rúgmjöl svo lágu verði. Samband íslenskra samvinnufjelaga var langlægst, seldi það á 61 kr. tunnuna. Nefndinni bárust margar kvartanir, og jeg fjekk jafnvel að heyra ónotaorð á götum úti fyrir að hafa sett rúgmjölstunnuna á 60 krónur. Það væri auðsjeð, að jeg væri hættur að fást við verslun, að jeg skyldi setja verðið á rúgmjölinu svona niður.
Nýlega frjetti jeg svo í gegnum landsverslunina, að verð á rúgmjöli hefði hækkað um 15 kr. tunnan í Kaupmannahöfn. Eftir það seldi þó landsverslunin rúgmjölið á 60 kr. Hún gat þó fengið rúgmjöl með dýrara verðinu og grætt á því. Kaupmenn gerðu annað; þeir geymdu rúgmjölið og settu það svo upp í 76 krónur. Nú hefir rúgmjölið verið sett niður í 74 kr., og er lækkunin frá 76 kr. fólgin í fallandi farmgjaldi. Eftir þetta barst verðlagsnefnd reikningur yfir rúgmjöl frá Kaupmannahöfn, vel sundurliðaður og ítarlegur, og eftir honum kostar rúgmjölið hjer 87 krónur. Verðið var ómögulegt að setja niður, ef fara átti eftir reikningnum. En svo getur manni dottið í hug, að þetta kunni að vera afleiðingar þess, að í Kaupmannahöfn vita menn, að hjer hefir hefir verið skipuð verðlagsnefnd, og því væri vissara að setja innkaupsverð vörunnar nokkuð ríflega.
Nú vil jeg spyrja: Er það þetta, sem landsmenn eru að gera kröfu um? Er það svona verslunarmáti, sem þeir ákalla? Er það vegna hans, sem á að afnema landsverslunina sem óþægilegan keppinaut, og alt eftirlit í þessu efni? Eru menn að hrópa um það að fá að borga 87 kr. fyrir það sama, sem landsverslun selur á 74 kr. ?
Jeg heyrði á umr. í Nd. um þessi mál, og þar var það borið fram, að verðlagsnefndin hefði hlíft landsversluninni þegar hún átti mikið af vörum, sem dýrari voru en fáanlegar reyndust hjá kaupmönnum. Verðlagsnefndin hefir ávalt reynt að synda milli skers og báru í þessu efni. Hún hefir altaf sett verðið nokkru hærra, ef um gamlar vörur var að ræða. Og hún hefir líka athugað, hvort hinir ýmsu verslunarstaðir hafi átt kost á að ná í ódýrar vörur af þeim vörutegundum, sem fallið hafa í verði undanfarið.
Þetta vona jeg að hv. nefnd taki til greina, þegar hún fer að athuga þessi mál.
Að landsverslunin hefði lamandi áhrif á viðskiftalífið, þótt hún hefði einkasölu á nokkrum nauðsynjavörutegundum (einokun, sem sumir nefna það, er það alls ekki, því það er ekki einokun, nema okrað sje á vörunni í eiginhagsmunaskyni, en það hefir landsverslunin ekki gert), það fæ jeg ekki skilið. Og að landsverslunin hafi ekki fullan rjett á sjer í frjálsri samkepni við kaupmenn, get jeg ekki heldur fallist á. Hún er og nú ekki annað en heildsali. Hún ef til vill bægir frá nokkrum óþörfum milliliðum, nokkrum svokölluðum heildsölum, sem kalla mætti gorkúlur, er vaxið hafa á þessum viðskiftasorphaug, sem safnast hefir á stríðsárunum. En ætli neytendurnir, þeir, sem borga brúsann, telji hana hafa lamandi áhrif á viðskiftalífið fyrir því? Landsverslunin á að vera stórsöluverslun, sem nemur burtu óþarfa milliliði, og jafnframt svo vönduð í öllu, að óhætt sje að treysta henni og byggja á henni.