02.03.1921
Efri deild: 12. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í D-deild Alþingistíðinda. (3562)
60. mál, viðskiptamálanefnd
Fjármálaráðherra (M. G.):
Hv. 2. landsk. þm. (S. E.) sagði, að ef lánstraust væri erlendis, mundi vera hægt að fá yfirfærslur, og sje ekki hægt að fá yfirfærslur, þá sje lánstraustið heldur ekkert. Jeg vil benda á, að það er ekki nóg að hafa traust, heldur verður fje að vera fyrir hendi hjá þeim, sem á að fá lánið hjá. Flestar þjóðir hafa nú nóg með sig. Erfiðleikarnir á yfirfærslunni eru því ekki vottur um vantandi lánstraust, heldur um vantandi fje erlendis til lánveitinga.
Hv. þm. (S. E.) gaf þær upplýsingar, að hann hefði getað fengið lán í Noregi eða Svíþjóð 1919, en að hann hefði ekki tekið þau þar, því að skilyrði þau, sem hann gat fengið lánið með, hefðu ekki verið svo góð sem skyldi. Ætli það sje ekki enn þá svo, að ekki er hægt að binda sig við neitt sjerstakt land, því lönd þau, þar sem gengið er hátt, geta sett svo erfið lánskjör, að þau sjeu með öllu óaðgengileg, því þeir vita engu síður en við um hið háa gengi. Ameríkumenn hafa nú þegar sýnt þetta með lánskjörum sínum. Jeg neita því ekki, að hv. þm. (S. E.) hafi staðið vel í stöðu sinni, þegar hann var fjármálaráðherra, og sjeð vel fyrir ríkissjóði, og þykist jeg hafa stutt hann til þess. En hvað því viðvíkur, að fjármálaráðherra einn hafi ábyrgð á fjárhag landsins, (S. E.: Ekki hann einn, heldur stjórnin öll). Hv. þm. (S. E.) sagði, að fjármálaráðherra einn bæri ábyrgðina. (S. E.: Jeg bið afsökunar á því).
Það er rjett, að jeg talaði aðeins við einn bankastjóra Landsbankans. En hann var sendur af bankastjórninni, og þegar hann fær það lán, sem hann biður um, í samræmi við vilja hinna bankastjóranna, þá álít jeg það fullnægjandi.
Hv. þm. (S. E.) hjelt því fram, að jeg hefði átt að skipa bankastjórunum að taka lán. En jeg vil benda á, að stjórnin getur ekki skipað Íslandsbanka að taka lán. Forsætisráðherra hefir að vísu eitt atkv. í bankaráðinu af 7, en stjórnin sem slík hefir engan rjett til að skipa bankanum að taka lán. Jeg tek fyllilega á mig ábyrgðina af því, að landsstjórnin tók ekki sjálf lán.