23.02.1921
Neðri deild: 7. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í D-deild Alþingistíðinda. (3575)
51. mál, viðskiptamálanefnd Nd
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg mun ekki lengja umr. mikið. Mjer skilst aðeins, að hjer sje verið að stofna til fullmargra nefnda, þar sem bæði er að ræða um fossanefnd, bankamálanefnd, fjárkreppunefnd o. fl., auk fastanefndanna. En hv. þingmenn verða að athuga, að það er gagnslaust að skipa nefndir, sem hafa hvorki tíma til starfa nje húsrúm. Jeg óska því helst eftir, að engar aukanefndir verði skipaðar, en málinu vísað til þeirrar fastanefndar, sem hjer liggur næst, en það er fjárhagsnefnd. Jeg geri þetta þó ekki að kappsmáli, en vildi aðeins benda á, að þessar aukanefndir geta eigi haft annan tíma en eftir klukkan 9 á kvöldin, eða ef þingfundir standa eigi nema til 2, þá tímann, þar til fastanefndirnar taka til starfa. En það, sem mjer er sjerstaklega ant um, er það, að þessar aukanefndir dragi ekki frá starfi fastanefndanna, en komi aukanefnd, hallast jeg helst að brtt. á þskj. 54.
Að öðru leyti mun jeg láta málið afskiftalaust, en vildi að síðustu aðeins benda hv. 3. þm. Reykv. (J. P.) á, að það er vafamál, hvort hægt er að segja með rjettu, að hagsmunir ríkissjóðs og almennings rekist á, ef svo vill til, að vara er keypt handa almenningi og hún síðan fellur í verði, svo að annaðhvort verður að selja hana undir verði, eða hærra en sama vara er seld á sama tíma.