23.02.1921
Neðri deild: 7. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í D-deild Alþingistíðinda. (3583)

51. mál, viðskiptamálanefnd Nd

Magnús Kristjánsson:

Það vill nú svo til, að jeg hefi enga ástæðu til að svara hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Hann gerði enga tilraun til þess í svarræðu sinni að hrekja það, sem jeg hafði sagt. Aftur á móti þarf jeg að beina nokkrum orðum til hv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.). Hann virtist helst draga það út úr orðum mínum, að jeg væri því mótfallinn, að rannsakaður væri og athugaður verslunarrekstur landsins. En þetta er misskilningur. Jeg hefi aldrei sagt það, enda er fjarri, að jeg sje því mótfallinn, þó að mjer á hinn bóginn sýnist það óþarfi, þar sem landsverslunin stendur undir daglegu eftirliti stjórnarinnar og bestu endurskoðunarmanna, sem lokið hafa lofsorði á verslunarreksturinn.

Enda býst jeg við, að slíkri rannsóknarferð myndi farast líkt og stóru nefndinni 1918. Þá var kosin nefnd manna hjer á þingi, knúin fram af pólitískum ástæðum, til þess að athuga landsverslunina. Og það vantaði síst, að mikið átti að gera, en hvernig fór svo? Þegar öllu var á botninn hvolft, fann nefndin ekkert athugavert í rannsóknum sínum, er hún gæti hengt hatt sinn á. Eins býst jeg við, að gæti farið enn, að ekkert hefðist upp úr slíkri rannsókn annað en fyrirhöfn og tímaeyðsla. En hitt blandast mjer ekki hugur um, að ef þm. vildu sjálfir kynna sjer rekstur landsverslunarinnar nánar, þá myndu þeir hafa gott af því. Umr. sýna það, að hv. deildarmenn eru heldur ófróðir um hann og ókunnugir málinu yfirleitt.

Þá efaðist sami hv. þm. (Ó. P.) um það, að landsverslunin hefði átt frumkvæði að útvegun steinolíunnar í vetur. Mjer finst það nú litlu máli skifta, hver fyrstur hafi á það minst, en framkvæmdirnar voru þó hjá landsversluninni; því verður ekki neitað. En hann viðurkendi líka, að þetta hefði verið nauðsynleg ráðstöfun, og með því hefir hann þá játað, að hann sje þeirri stefnu fylgjandi, að stundum verði ekki hjá því komist, að ríkið taki innflutninginn í sínar hendur, enda vona jeg það, að hv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.) sýni það í verkinu, að hann hafi að einhverju leyti verið frumkvöðull þessara ráðstafana, og skifti nú við landsverslunina eftirleiðis, í staðinn fyrir það að hlaupa til keppinauta hennar á þessu sviði.

Að lokum aðeins örfá orð til hv. 2. þm. N.-M. (B. H.). Jeg skildi ekki hugsanaganginn í ræðu þessa hv. þm. Hann virtist leggja mikla áherslu á það, að banka- og peningamálin verði tekin til alvarlegrar íhugunar, en telur sig þó vera á móti brtt. á þskj. 54. Brtt. tekur það einmitt skýrt fram, að nefndin eigi að athuga þessi mál, en að vísa megi til sömu nefndar öðrum skyldum málum. Þetta er svo ljóst, að jeg get ekki annað skilið, en að hver meðalgreindur maður hljóti að skilja það.