23.02.1921
Neðri deild: 7. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (3590)
51. mál, viðskiptamálanefnd Nd
Jón Baldvinsson:
Jeg þarf ekki að draga neitt úr þeim ummælum mínum, sem hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) gerði að umtalsefni, að mín persónulega reynsla sje sú, að vörugæði og verð hjá landsversluninni sje ávalt hagkvæmara en hjá kaupmönnum. Hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) leit svo á, að til þessa gæti ekki verið nema ein ástæða, sem sje sú, að kaupmenn gerðu „ávalt“ verri innkaup en landsverslunin. Mjer er nú ekki kunnugt um þetta, en jeg geri ráð fyrir, að innkaup landsverslunarinnar sjeu ekki verri en kaupmanna. En þó að innkaup kaupmanna væru nú jafngóð, þá veit jeg, að hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) er svo mikill kaupmaður, að hann veit, að það er langt bil á milli innkaupsverðs kaupmanna og þess verðs, sem almenningur verður að greiða.
Þrátt fyrir ummæli hæstv. atvrh. (P. J.) hefir hveiti verið flutt til landsins síðan í janúar. Það er því ekki rjett, að innflutningur hafi verið bannaður á þeirri vörutegund. En það hefir ekki verið haft hátt um, að verðið sje sett niður.
Jeg þori vel að leggja út í landsverslun með samkepni við kaupmenn, og mjer þykir ekki ósennilegt, að margar af árásunum á landsverslunina eigi rót sína að rekja til ótta kaupmanna sjálfra við landsverslun sem keppinaut.