23.02.1921
Neðri deild: 7. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (3591)

51. mál, viðskiptamálanefnd Nd

Magnús Kristjánsson:

Aðeins örfá orð til þess að svara fyrirspurn hv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.). Mjer þótti fyrirspurnin satt að segja undarleg. Jeg hjelt þingmanninn svo fróðan, að hann vissi þetta. En úr því svo er ekki, þá er mjer ánægja að fræða hann.

Endurskoðendur landsverslunarreikninganna eru þeir dr. Ólafur Daníelsson og Gísli ísleifsson skrifstofustjóri. Síðan ganga reikningar þessir til endurskoðenda landsreikninganna.