18.05.1921
Neðri deild: 72. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í D-deild Alþingistíðinda. (3616)

127. mál, landsverslunin

Magnús Kristjánsson:

Jeg er sammála hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) um það, að ástæðulaust sje að hafa langar umr. um þessar till., sem hjer liggja fyrir. Jeg álít, að greinargerðir þær, sem tillögunum fylgja, skýri málið nægilega, og þess vegna er hægt að komast hjá að segja mörg orð um þær. Jeg vona, að hv. þm. sjái, að mín till. fer þann hóflega meðalveg, og þess vegna vænti jeg, að þeir geti fallist á hana. Aðaláherslan er á það lögð að binda ekki um of hendur stjórnarinnar, svo að hún geti aflað landinu þeirra vörubirgða, sem nauðsynlegar eru. Þess vegna hlýt jeg að vera mótfallinn till. meiri hlutans, því hann einskorðar landsverslunina við 2 vörutegundir, kol og olíu. Hafi þetta getað talist afsakanlegt þegar till. var samin, er nú frágangssök að samþykkja það, því að kringumstæður hafa breyst síðan, og það ekki til batnaðar. Örðugleikarnir hafa vaxið. Tímarnir eru svo nú, að fara verður gætilega í því að hindra stjórnina í því að afla landinu nauðsynja, og er því hyggilegast að fallast á till. mína, sem tekur tillit til þessa. Jeg þarf ekki að ræða þetta mál, greinargerðin getur talað fyrir mig, og hana vona jeg, að hv. þm. hafi lesið, en jeg verð þó að víkja að nokkrum atriðum í greinargerð meiri hlutans, sem geta verið villandi.

Það er skýrt svo frá í þessari greinargerð, að rekstrarhalli verslunarinnar hafi á síðasta ári verið kr. 347,566,44. Þetta er villandi, því að hagnaður er á því ári kr. 610,649.02, og er það talsverður munur. En jeg þykist sjá, hvaðan þessi villa stafar, því að meiri hlutinn dregur frá niðurfærslu á kolum, sem gerð var um síðustu áramót. Þessi niðurfærsla er færð á fyrra árs reikning, en það er vafamál, hvort þetta beri að skoða sem halla verslunarinnar eða ekki. Þetta er ekki þýðingarmikið atriði, því að einu gildir, hvar þetta lendir, hvort heldur er á landsverslun eða ríkissjóði, en til þess að sýna sanna niðurstöðu á rekstri verslunarinnar, vil jeg benda á tvö atriði. Meiri hlutinn heldur því fram, að niðurfærsla sú, sem gerð var á kolum og salti í þann mund, sem vopnahlje var samið og nam um 11/2 milj. kr., sje tap verslunarinnar. Þessu verð jeg að mótmæla, því að hægt hefði verið að komast hjá þessu tapi, með því að halda við eðlilegu vöruverði og selja vöruna eins og hún kostaði. En stjórnin leit svo á, að rjett væri að veita almenningi þessi hlunnindi, og verður það ekki skoðað sem tap. Næsta þing staðfesti þessa skoðun, með því að ákveða, að þetta skyldi ekki teljast tap verslunarinnar, heldur skyldi það unnið upp með tolli. Þess vegna er ekki hægt að færa upphæð þessa til frádráttar. Með því að færa alla þessa síðari verðniðurfærslu á kolum á landsverslunina, sem alls ekki er rjett, yrði hallinn á síðasta árs rekstri ekki meiri en kr. 207,945, því að þær 139 þús., sem meiri hlutinn telur með, er alt annars eðlis, og er næsta undarlegt að telja það verslunartap. Annars eru þetta atriði, sem ekki er vert að deila um, en jeg vildi aðeins skýra það af því, að meiri hlutinn hefir reynt að koma inn misskilningi, þeim viðvíkjandi.

Þá heldur meiri hlutinn því fram, að verslunin hafi notið stórkostlegra hlunninda fram yfir aðrar verslanir. Hún hafi verið látin sitja fyrir með vöruflutninga á skipum landssjóðs, og verið bjargað frá kolatapinu með tolli. Jeg hefi áður talað um kolin, og þarf ekki að fara lengra út í þær flækjur hv. meiri hluta. En hvað skipunum viðvíkur, veit jeg ekki betur, en að verslunin hafi greitt fult farmgjald fyrir vörur þær, sem þau hafa flutt fyrir hana.

Þá er því slegið föstu í greinargerðinni, að landsversluninni hafi aðeins verið ætlað að starfa stuttan tíma. Jeg verð að telja þetta mjög hæpna ályktun. Það hlaut auðvitað að fara eftir því, hvernig verslunin gengi, hvaða árangur hún hefði, hvort hún stæði lengur eða skemur. Og úr því að árangurinn hefir reynst góður, er ekki ástæða til að leggja hana niður þess vegna. Og síst er tími til þess nú að taka ákvörðun í þá átt, að verslunin hætti þegar í stað.

Þá er lögð áhersla á það í greinargerð meiri hlutans, að verslunin sje áhættumikil, og eigi frekar að stuðla að því að losa landssjóð við áhættu á þessum tímum, heldur en að auka hana. Þetta er út í loftið sagt. Áhættan er ekki meiri nú en áður hefir verið, og þetta getur engin úrslitaáhrif haft á málið. Jeg spyr alla þá hv. þm., sem hafa tilhneigingu til þess að líta rjett á málið, og ekki eru bundnir hagsmunum, sem teyma þá í öfuga átt. Er nokkurt vit í því á þessum tímum að tala um, að landið þurfi sem fyrst að hrista af sjer þessa stofnun, landsverslunina? Jeg lít þveröfugt á það mál. Jeg er sannfærður um, að það hefði lamandi áhrif á alt viðskifta- og atvinnulíf landsins, ef þessi stofnun yrði afnumin þegar alt er enn í óvissu í heiminum, eins og nú á sjer stað. Afleiðingarnar eru tvennskonar. Í fyrsta lagi sú, að svo er nú komið, að skortur er orðinn á ýmsum vörutegundum, svo sem kolum, rúgmjöli og sykri. Þetta er afleiðingin af því hiki, sem orðið hefir á starfsemi vegna þess, hvaða skoðun hefir verið á lofti haldið af mótstöðumönnum landsverslunar. Og í öðru lagi er minni von um, að fyrirtækið geti staðið straum af þeirri verðlækkun, sem orðið hefir á kolum og öðrum vörutegundum á þessu ári. Hefði verslunin ekki orðið að takmarka sig vegna þess mótþróa, sem hún hefir átt að mæta, og hefði þessi andróður gegn versluninni ekki átt sjer stað, þá hefði hallinn getað orðið lítill. En það er loku fyrir það skotið, að nokkuð geti áunnist, ef till. hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) og hans samherja verða samþ., enda vænti jeg, að svo verði ekki, því það myndi verða til mikils tjóns.

Jeg held jeg hafi lofað því að verða stuttorður, og verð því að enda það, enda var hv. frsm. (J. Þ.) svo hógvær, að jeg vil síst gefa tilefni til þess, að hann þurfi að eyða miklum tíma í þetta mál. Jeg vil þó, áður en jeg skil við málið, geta þess, að enda þótt jeg að ýmsu leyti geti fallist á stefnu hv. 2. þm. Reykv. (J. B.), lít jeg þó fremur á hana sem framtíðarhugsjón, sem rjett sje að stefna að, þó að ekki sje hægt að framkvæma hana nú, eins og sakir standa, eða gera eins víðtækar ráðstafanir og hann vill og telur æskilegar. Það er eins um þetta mál og mörg önnur, sem miða til þjóðþrifa, að þjóðin þarf tíma til þess að átta sig á þeim og skilja nytsemi þeirra. Það er annað, sem gerir það líka, að jeg treystist ekki að fylgja stefnu þessari nú þegar, og það er það, að fyrirtækið heimtar mikið rekstrarfje, sem erfitt er að hafa handbært nú á tímum.

Eftir að hafa tekið þetta fram, og jafnframt vísað til greinargerðarinnar, sem fylgir minni till., býst jeg ekki við, að jeg þurfi fleira að segja, og treysti svo á greind og góðan vilja hv. þdm., að jeg tel víst, að þeir samþykki till. mína.