07.04.1921
Neðri deild: 37. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (362)

40. mál, póstlög

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Hv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.) gerir lítið úr þeirri hættu, sem sje á misritun ávísananna. Það er ekki rjett ályktað hjá háttv. þm. (Ó. P.), þó oftast hafi tekist að ná inn eftir á því, sem þannig hefir verið ofborgað. Það eru mörg sýnishorn þess, að hættan er fyrir hendi.

Það er rangt og ósæmilegt, eins og gert var í blaðagrein nýlega, að kenna skeytingarleysi símastöðvanna um, ef Slíkt á sjer stað. Það getur altaf komið fyrir, að tölur raskist í meðferðinni eitthvað, án þess að símaþjónum verði svo mjög um kent. Nú er fjárhagur manna á völtum fótum, og þá getur þetta orðið tilfinnanlegt og örðugra hjer eftir að fá villur ætíð leiðrjettar og ofborgaðar upphæðir endurborgaðar. Hitt er rjett, að hallinn hefir ekki orðið meiri en samtals 100 kr. af þessum skakkaföllum, enn sem komið er. Það er ekki rjett, að kenna þessar misfellur að sjálfsögðu því, að símafólkið ekki standi yfirleitt sæmilega í stöðu sinni.

Í fyrsta lagi getur ruglingur oft átt sjer stað, án þess að það geti við gert. Stundum eru nefndar of háar eða of lágar upphæðir, og villan kemst oft ekki upp fyr en búið er að borga eftir misnefninu.

Í öðru lagi vill til, að sama ávísunin sje send tvisvar sinnum. Pósthúsið getur þá ekki vitað, hvort þær eiga að vera tvær, eða hvort hin sama hefir verið tvísend af vangá.

Í þriðja lagi gera þessar ávísanir póstsjóði að jafnaði meiri kostnað og óþægindi vegna þess að hann þarf að greiða þær fyrir fram. En annað póstávísanafje hefir póstsjóður stundum legið með um tíma hjer í Reykjavík, og fengið þar uppbót nokkra í vöxtum.

Jeg ætla ekki að gera það að neinu kappsmáli, þótt varatill. á þskj. 232 verði samþ. En jeg vil gera það að kappsmáli, að öll hækkun verði eigi feld niður.

Jeg get fallist á, að símagjöldin fyrir ávísanirnar verði lækkuð niður í 2 kr. Landssímastjóri fjelst á, í samtali við mig, að það væri sanngjarnt, og jeg þori að segja fyrir hönd allrar stjórnarinnar, að hún muni ekki vera á móti því, ekki síst ef hækkunin á burðargjöldunum kemst fram, en annars ekki.