18.05.1921
Neðri deild: 72. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í D-deild Alþingistíðinda. (3621)
127. mál, landsverslunin
Jón Þorláksson:
Jeg vildi aðeins bæta því við, til þess að rjettar tölur komi í þingtíðindunum, að í tilboði því, sem jeg var að tala um, var hveitisekkurinn, kominn á höfn, kr. 48,30. En verð það, sem S. Í. S. gefur upp fyrir hveiti nr. 2 frá Englandi, komið á höfn, er kr. 45,58 fyrir sekkinn, og mun það vera um samskonar vöru að ræða, og er þetta talsverður verðmunur.(M. K.: Það er bara ekkert komið af því hveiti). En S. Í. S. mun sjálft geta svarað fyrir sig, ef því er haldið fram, að það hafi gefið upp tylliboðsverð.