18.04.1921
Efri deild: 46. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (373)
40. mál, póstlög
Sigurður H. Kvaran:
Jeg stend ekki upp til þess að mótmæla þessu frv. á neinn hátt. En mig langar til, í sambandi við það, að minnast á meðferð stjórnarvalda landsms á brúkuðum frímerkjum.
Enn sem komið er hefir víst engum dottið í hug annað en viðtakandi brjefs ætti þau frímerki, sem á brjefinu eru. Sama er að segja um frímerki á böggulsendingum og vörutoll af póstbögglum. Því að svo segir í vörutollslögunum, að þetta gjald skuli viðtakandi greiða í frímerkjum, en þau skal líma á böggulinn „og stimpla þau á venjulegan hátt“. Nú hefir sú skipun verið gefin út á liðnu ári af póststjórninni, að þessi frímerki megi ekki afhenda, heldur skuli þau send suður til Reykjavíkur, til þess þar að verða götuð og þar með ónýtt. Sama er um stimpilmerki þau, sem á eru límd á pósthúsum.
Nú vil jeg spyrja: Hafa starfsmenn landsins ekkert þarfara að gera en að ónýta eigur manna? Og er rjett af háyfirvöldum þessa lands að ganga á undan í því að taka með valdi eigur manna og ónýta? Jeg verð að mótmæla þessu og krefjast þess, að landsstjórnin banni að þessu sje haldið áfram. Þetta er, hvort sem er, alveg skýlaust lagabrot, og svo virðist, sem stjórnin ætlist ekki til, að þetta sje gert, því að í frv. því um vörutoll, sem stjórnin hefir nú lagt fyrir þingið, er þetta ákvæði, sem jeg nefndi, alveg óbreytt.
Ástæður þær, sem póststjórnin færir fyrir þessu, met jeg að engu. Það gæti komið til álita, hvort póstgjaldið væri of lágt, af því að viðtakandi bögglanna eignast verðmæti um leið og hann borgar. Við því er það að gera að hækka gjöldin, en láta hvern halda sínu. Þá vil jeg benda á, að póststjórnin tekur allar póstávísanir og leggur undir sig frímerkin af þeim og selur. Nú heldur hún því fram, að of mikið af notuðum frímerkjum komi til framboðs, ef menn fái frímerkin fyrir vörutollinn og stimpilgjaldið, og muni það spilla fyrir sölu þeirra frímerkja, sem póststjórnin selur ónotuð. En því gatar hún ekki fyrst þau frímerki. er hún sjálf hefir lagt undir sig til eigin hagsmuna? En aðalatriðið er þetta, að póststjórnin hefir enga heimild, fremur en neinn annar, til þess að taka mína vöru og ónýta, til þess að sín vara gangi betur út, hvort sem það eru starfsmenn póststjórnar eða landið sjálft, sem hlut á að máli.
Jeg hefi hreyft þessu hjer, í þeirri von, að stjórn landsins láti eigi viðgangast, að svo sjeu brotin lög á mönnum, þá er henni hefir verið bent á það.