16.03.1921
Neðri deild: 24. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í D-deild Alþingistíðinda. (3732)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Forsætisráðherra (J. M.):
Það er ekki enn orðin sú skemtun fyrir fólkið, sem gera mátti ráð fyrir. Jeg skal ekki heldur stuðla til þess eða taka öðruvísi í málið en hv. flm. (B. J.) hefir gert. Hans ræða var fullkomlega þingleg; síður ræða hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.).
Hv. þm. Dala. (B. J.) segir, að það sje af einskærri vináttu við stjórnina, að hann flytur hjer fram vantraust. Hann vilji með því leiða í ljós, hvort hún sje fullkomin þingræðisstjórn eða ekki, og vilji fá hv. þm. fram úr skúmaskotunum. Jeg er samdóma hv. flm. (B. J.) um það, að það er í rauninni ekkert stórmál, þótt skift sje um stjórn. En því síður ætti það að þurfa að gerast með öðrum eins harmkvælum og hjer tíðkast. Annarsstaðar frá eru þess engin dæmi. En það eru sannarlega harmkvæli, að þessi till. hefir þurft mánuð til að fæðast, og hefir það tafið þingstörfin, svo nú er lítið að gert. Jeg get vorkent hv. þm. (B. J.) að þurfa að bera fram vilja flokks síns, en ef vantraustið nær ekki fram að ganga, þá hefir óforsvaranlega löngum tíma verið eytt þar til ónýtis.
Það er ekki rjett hjá hv. þm. (B. J.), að á slíkum tímum sem nú eru þurfi stjórn endilega að hafa stuðning ákveðins meiri hluta í þinginu til þess að geta setið við völd. Í ýmsum nágrannalöndunum, t. d. Noregi og Danmörku, hafa setið minni hluta stjórnir á síðari árum, og sitja enn, að því er jeg veit best, í Noregi. Og þess mætti nefna mörg dæmi, bæði fyr og síðar. Hitt er rjett hjá hv. þm. (B. J.), að það er ekki ástæða til að taka því illa, þó að mótstöðuflokkur stjórnar reyni að steypa henni frá völdum; það má vel orða það eins og hv. þm. Dala. (B. J.), að það sje yfirlætislaus hlutur, enda mátti búast við því, að svo sje, er hann tók að sjer flutninginn.
Hv. þm. (B. J.) er svo sem að afsaka, að hann hafi ekki komið með traustsyfirlýsingu á stjórnina. Þessar vífilengjur koma mjer undarlega fyrir sjónir. Mjer finst það mjög óviðkunnanlegt. Hann hefði alls ekki átt að nefna það. Jeg hefi aldrei heyrt þess getið, að nokkur þm. hafi látið sjer detta í hug að koma með traustsyfirlýsingu á stjórn, sem hann er eindregið mótfallinn. Mjer finst þvílíkt athæfi engum heiðarlegum þm. sæmandi. Enda skil jeg ekki, að það hafi komið í nokkurri alvöru til tals.
Það er satt, að jeg hefi aldrei óskað eftir stuðningi frá þeim flokki, sem hv. þm. telst til, eða er foringi fyrir. Og þótt mjer geti þótt vænt um stuðning einstakra manna úr þeim flokki, þá vil jeg segja hv. þm. (B. J.) það, að jeg mundi álíta mig á skakkri braut, ef hann styddi mig. Hann studdi vel stjórnina meðan einn flokksmaður hans var í henni, en jeg tók það ekki til mín. Annars hefir hv. þm. (B. J.) ekki ávalt verið einfaldur í þjónustu sinni við foringjana.
Margt af því, sem hv. þm. (B. J.) nefndi, kemur meir við hina ráðherrana heldur en mig. Þó vil jeg nefna einstök atriði.
Hv. þm. (B. J.) sakaði stjórnina mikið fyrir það að hafa ekki breytt svo kosningalögunum, að kjósendur úti um land hefðu nægilegan tíma til að kjósa. Sagði, að til þess þyrftu þeir að minsta kosti 3 daga. Þetta sagði hann vera stórmál vegna þess, að verið væri að ræða um rjettindi. En ef það eitt á að gera það að stórmáli, þá verða mörg mál stórmál, því það eru ógrynni þingmála, sem snerta rjettindi. Jeg er annars hissa á því, að hv. þm. (B. J.) skuli nefna annað eins og þetta. Ef þurfa þykir, má gera þvílíka breytingu á svipstundu.
Jeg ætla ekki að svara því miklu, sem hv. þm. (B. J.) sagði um atvinnumálin. Atvrh. (P. J.) mun svara því best. Hv. þm. sakaði stjórnina um framkvæmdaleysi. Sagði, að hún hefði vanrækt að skerast í leikinn og taka fram fyrir hendur ýmsra atvinnurekenda, t. d. að taka síldina af síldareigendunum og selja fyrir þá. Margir aðrir hafa hins vegar legið stjórninni á hálsi fyrir það að hafa haft afskifti af frjálsum framkvæmdum, t. a. m. verslun. Stjórnin hefir ávalt verið fús til að aðstoða atvinnurekendur og kaupmenn, er þeir hafa leitað til hennar. Jeg get í þessu sambandi mint á útflutningsnefndina og aðrar sölunefndir, sem störfuðu hjer á sínum tíma. En jeg býst við, að hið háa Alþingi mundi kunna stjórninni litlar þakkir fyrir, ef hún færi svo sem upp úr þurru, ótilkvödd, að skifta sjer af atvinnurekstri eða verslun einstakra manna. Annars þarf jeg ekki að tala meira um þetta; það verður minst á það af öðrum.
Hv. þm. (B. J.) las rjett upp það, sem hann sagði í fyrra, þegar stjórnin var í myndun. En hann gat sparað sjer það. Vitaskuld var flokkur hans á móti stjórninni, að einum hv. þm. undanteknum. Hann sagði, að flokkurinn hefði lýst yfir, að hann ætlaði ekki að eira stjórninni. Við það er ekkert að athuga. En hann talar jafnframt um, að hann hafi sett stjórninni fyrir. Jeg vil ekki viðhafa óþingleg orð, en jeg verð að segja, að mjer finst það stappa nærri því að mega kallast ósvinnu, þegar flokksforingi, sem hefir lýst yfir, að hann ætli ekki að eira stjórn, fer að leggja þeirri sömu stjórn lífsreglurnar. Og jeg hefi sagt honum það áður, að jeg kæri mig ekkert um hans ráð. Annars voru það heldur smávægileg brot, sem hv. þm. (B. J.) sagði að stjórnin hefði gert á hans ráðum.
Aðalmálið hjá honum var, eins og við var að búast, utanríkismálin. Hann vísaði til ræðu sinnar um þau mál hjer á dögunum, og það vill svo vel til, að hún er til sjerprentuð undir nafninu „Stjórnin og sjálfstæðið“.
Kem jeg þá þar að því, sem vera átti aðalásökunarefnið gagnvart mjer, sem sje að jeg hafi vanrækt að halda fram þeim rjetti, sem við fengum með sambandslögunum. Nú þykist jeg sjálfur eiga þó það mikið í þeim samningi, að ekki væru líkindi til þess, að órannsökuðu máli, að jeg vildi láta undir höfuð leggjast að fylgja honum. Það mætti að minsta kosti vera undarlegur maður, sem ekki liti svo á málið og ekki væri um það hugað, sem hann hefði sjálfur átt þvílíkan hlut að. Hv. þm. (B. J.) talaði um það í þessu sambandi, hvernig jeg hefði tekið undir þingsál.till. hans um 7. greinina. Jeg sagði þá, og stend við það enn, að jeg teldi samþykt hennar, eins og hún er, fela í sjer vantraust. Hv. þm. (B. J.) neitaði því reyndar þá, að í henni væri vantraust falið, en gaf þó í sömu andránni út ræðu sína undir titlinum „Stjórnin og sjálfstæðið“. Það er nú ekki svo að skilja, að jeg kippi mjer upp við vantraustsyfirlýsingu frá þessum hv. þm. (B. J.). Jeg veit, að hann kemur fram með hana hvenær sem hann hefir nokkra von um, að hún gangi fram, hvort sem hann telur hana rjettmæta eða ekki. En jeg vildi aðeins, að hann kannaðist við það, þegar hann er á annað borð að bögglast við þetta á einhvern hátt.
Þegar hv. þm. (B. J.) var að leggja stjórninni lífsreglumar, þá krafðist hann þess, að tekið væri upp embættisheitið utanríkisráðherra með tilheyrandi stjórnardeild. Jeg sagði um þetta þegar, að jeg sæi ekki ástæðu til þess að leggja í þann mikla kostnað, sem þessu væri samfara, að setja upp heila deild, nje sinna kröfu hans um nafnið, þó að hins vegar væri gott, að öll utanríkismálin væru hjá einum manni. Og nú hafði jeg einmitt gert ráðstafanir til þess, að ungur og efnilegur maður kynti sjer sjerstaklega slík mál og hefði þau síðan á hendi. En þetta á ekki að þurfa að kosta mikið. Aðeins viðbót á svo sem tveggja tíma vinnu á dag í hæsta lagi.
Jeg fæ því ekki sjeð, að þetta atriði geti á nokkurn hátt orðið tilefni til vantrausts, enda veit jeg ekki til þess, að nokkur maður annar en hv. þm. Dala. (B. J.) hafi fundið að því, að þetta embætti skuli ekki hafa verið stofnað.
Þótt jeg hafi ekki í upphafi ætlað mjer að fjölyrða mjög um þetta, hefir hv. þm. (B. J.) nú neytt mig til þess, með því að gefa ræðu sína út sem sóknarskjal á hendur stjórninni. Jeg verð því einnig að víkja að öðrum töluliðum í þál.till, þar sem hann talar um það, að fylgja eigi fast fram skilningi hans, eða hins íslenska hluta nefndarinnar, um 7. gr. Reyndar er jeg hissa á því, hvernig þetta er orðað, því öðrum, sem ekki eru eins mikillátir og hv. þm. Dala. (B. J.), mundi fyr hafa dottið í hug að bera fyrir sig þingið sjálft, þar sem það hjelt 1918 fram sama skilningnum.
Jeg skal ekki að sinni fara frekar út í það, hvað jeg persónulega hefi gert eða ekki gert í því máli, en vil aðeins geta þess í þetta skifti, að það hefði síst setið á einum nefndarmanninum úr lögjafnaðarnefndinni að klappa þannig á þingsins dyr, meðan málinu er ekki lokið í nefndinni sjálfri, einkum þar sem þess gat ekki verið langt að bíða, að þetta atriði yrði afgreitt þaðan.
Þá kemur enn eitt atriði, sem hv. þm. Dala. (B. J.) mintist á, það, að láta alla sendimenn okkar í útlöndum í sjerstökum málum heita sendiherra um stundarsakir. Þetta er alveg ný krafa hjá hv. þm. (B. J.) og því alveg rangt að vísa til þess sem nokkurs brots hjá stjórninni að hafa ekki gert þetta. En þar á ofan bætist svo það, að þessi hv. þm. (B. J.) sjálfur hagaði svo orðum sínum í fyrra, að þetta mætti ekki svo vera, því það væri ekki í samræmi við sambandssamninginn. Annars hlýtur hv. þm. (B. J.) að vita það, að þetta sendiherrahugtak er svo afmarkað hugtak, að ekki þarf um það að deila, og hann ætti að minsta kosti að þekkja samþykt um þessi efni frá 1918 og vita það, að sendiherrar eru yfirleitt aldrei öðruvísi en „fastir“, en ekki „um stundarsakir“. Hv. þm. Dala. (B. J.) hefir því sjálfur verið á þessari sömu skoðun, en raknaði við þegar hann sá rit eitt eftir Lundborg, þar sem öðru var haldið fram. Þótt það sje því leiðinlegt, að hv. þm. (B. J.) skuli þannig sjálfur hafa smíðað vopn á þessa sína eigin núverandi skoðun, er það þó í rauninni ekkert nýtt, þar sem það er vani þessa hv. þm. (B. J.) að tala sífelt í tíma og ótíma, en muna svo ekki neitt hvað hann hefir sagt, þegar það er rekið ofan í hann.
Þá kem jeg að atriði, sem okkur greinir á um, þar sem við erum alveg á öndverðum meið. Því jeg er ekki þeirrar skoðunar, að 7. gr. sje okkur óhagstæð. En það var rjett hjá andstæðingum samningsins, að ef nokkuð hefði verið okkur þar óhagstætt, var það 6. gr. En hún er það ekki heldur. En um 7. gr. erum við þá sem sje alveg ósammála, og fæ jeg ekki sjeð, að það hafi getað verið nokkur nauðung að ganga að henni. Jeg álít, að við getum vel falið annari þjóð að fara með utanríkismál vor, þegar við sjálfir höfum öll ráð yfir þeim. Og jeg álít, að þetta eigum við að hagnýta okkur, okkur sama sem að kostnaðarlausu. Hv. þm. Dala. (B. J.) vill hins vegar, gagnstætt því, sem jeg vil, láta nota undantekningarnar sem mest. Jeg vil aðeins beita þeim þar sem þörf er á. Og með því að senda sendiherra til Kaupmannahafnar höfum við fullkomlega sýnt sendiherrarjett okkar.
Þá er komið að landhelgisgæslunni, og verð jeg að segja það fyrir mitt leyti, að jeg skammast mín ekkert fyrir það, þótt Danir annist hjer gæsluna fyrir okkur. Jeg skoða það sem endurgjald frá þeirra hálfu, sem við eigum að ganga eftir. Og um aukningu gæslunnar skal jeg segja það, að þótt jeg hefði að fyrra bragði farið fram á það, að hjer yrðu höfð tvö skip, hefði jeg ekki þóst þurfa að biðja neinnar velvirðingar á því. Hv. þm. (B. J.) virtist draga það í efa, hvernig málið hefði verið tekið upp. Jeg skýrði frá þessu í ráðgjafarnefndinni, og mætti furðu gegna, ef jeg hefði ekki skýrt rjett frá þar, þar sem jeg vissi, að orð mín áttu að flytjast bæði dönsku stjórninni og þinginu. Hitt getur verið efamál, hvort ummæli t. a. m. dönsku nefndarmannanna geta skoðast sem beint tilboð. Þeir gera kost á þessu, ef þingið óskar.
Símskeyti ríkisráðherrans danska er fram komið vegna þess, að honum var flutt það, að svo hefði verið um mælt í þinginu, að Danir vildu þetta til þess að sýna flaggið, og má ske fleiri ummæli. Símskeytið segir ekkert annað en það, sem satt er, að Danir vildu heldur vera lausir við kostnað af strandhelgisgæslunni; þætti með öðrum orðum sóma sínum ekkert misboðið, þótt þeir fengju að spara þessi gjöld, ef Íslendingar vildu gefa það eftir. Þeir leggi fjeð fram, af því þeir hafi lofað því, og vilji halda gerðan samning drengilega og jafnvel fram yfir það, sem þeir eru beint neyddir til, ef þeir geti gert sambandsþjóðinni greiða með því, ef Alþingi óski.
Jeg þarf nú ekki að taka það fram, að mjer þætti það alveg rangt, ef þingið ekki þægi það með þökkum, að Danir geri strandgæsluna ríkari, hvað sem um er aukninguna af vorri hálfu. En það er óviðurkvæmilegt, jafnframt og það er þegið, að tala um framkvæmd landhelgisgæslunnar af hálfu yfirforingjanna með háðulegum orðum, eins og hv. þm. Rang. (Gunn. S.) gerði. Það er alveg sjálfsagt, og þarf ekki fram að taka, að yfirforingjarnir eru misjafnir og að það er óheppilegt, að hver hefir ekki nema stutta þjónustutíð hjer, en hitt er víst, að flestir, það er mjer kunnugt persónulega, hafa haft allan vilja á að leysa þetta verk vel af hendi, og hitt er og víst, að ekki er rjett að væna neinn þeirra um, að þeir vilji ekki gera skyldu sína.
Annars skal jeg láta þess getið, að jeg er alveg sannfærður um, að ráðandi stjórnmálamenn í Danmörku og þjóðin yfirleitt hafa enga minstu löngun til neinskonar yfirráða yfir Íslandi.
Um 5. og 6. atriðið ætla jeg ekki að tala. Hið fyrra atriðið er gripið úr lausu lofti, allsendis að ástæðulausu. Hið síðara hafði hv. þm. (B. J.) aldrei nefnt við mig og jeg ekki veitt því sjerstaka eftirtekt.
Um eitt kemur okkur hv. þm. (B. J.) að nokkru leyti saman, og það er, að vjer eigum að búa okkur þegar undir það að geta breytt sambandslögunum t. a. m. í þá átt að hafa sjálfir framkvæmdina í utanríkismálunum, þegar vjer erum færir um; hvort það er 1940 eða fyr eða síðar, það sýnist mjer of snemt um að ræða, eða hvernig sú breyting verður, það er nú ekki gott að vita. Vjer vitum nú fremur lítið um útlit heimsins og skipun eftir um 20 ár; jafnvel hv. þm. Dala. (B. J.) sjer skemra fram í tímann en svo. En vjer eigum að búa okkur undir að geta staðið sem mest einir. Engin þjóð getur það alveg, og síst smáu þjóðirnar. Þær þurfa altaf stuðning, og þær eiga einkum að styðja hver aðra. En sem sagt, markið er að geta staðið sem mest á eigin fótum. Um þetta erum við hv. þm. Dala. (B. J.) alveg sammála. En það er eins og svo oft áður, vegir okkar liggja ekki saman. Hann vill búa okkur undir með því að verja fje, miklu fje, til utanríkismála og annara hluta, sem stóru þjóðirnar spara jafnvel fje til, og ef vjer ekki höfum fjeð sjálfir, þá bara að fá fje að láni, tugi miljóna, marga tugi miljóna.
Jeg álít, að þá sje mest vonin um satt sjálfstæði vort, ef vjer með sparsemi, fyrirhyggju og atorku reynum að byggja og að nokkru leyti endurreisa atvinnuvegi vora, yfir höfuð byggja upp fjárhagslegt sjálfstæði vort. Þá fyrst er bygt svo, að standi.