18.04.1921
Efri deild: 46. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (374)
40. mál, póstlög
Atvinnumálaráðherra (P. J.):
Enda þótt þetta mál, sem hv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.) ræddi um, lúti undir mig, þá er mjer ókunnugt um það, og er jeg því ekki viðbúinn að gefa nein svör fyrir stjórnarinnar hönd. Þetta hefir aldrei verið undir mig borið, hvorki af póststjórninni, nje heldur hafa einstakir menn kvartað yfir því. En jeg tel mjer vitanlega skylt að kynna mjer þetta.