17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í D-deild Alþingistíðinda. (3745)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Jakob Möller:

Já, þá er nú hart að gengið. Jeg ætla nú samt ekki að ganga hart að hæstv. stjórn, enda er þessi vantrauststillaga ekki borin fram af mínum hvötum. Jeg hefði kosið, að hún hefði verið seinna á ferðinni, því jeg hygg, að afstaða stjórnarinnar til ýmsra mála muni verða ljósari síðar. Enn fremur hefði mjer verið ljúfara, að þriðja mál dagskrárinnar í dag hefði verið rætt á undan, vegna þess, að jeg þykist hafa orðið var við einhver veðrabrigði hjá hæstv. stjórn í því máli, sem hefði getað haft áhrif á atkvgr. hjer í dag.

Það hefir verið sagt, að þessi stjórn hafi átt skamma setu. Það er nú að vísu svo, að stjórnin var skipuð á síðasta þingi. En þess er þó að gæta, að sjálft höfuð stjórnarinnar, forsætisráðherrann, er enginn nýgræðingur, þar sem hann hefir verið stjórnarformaður í 4 ár. Jeg tel hann fullreyndan, og reynslan er þannig, að jeg get ekki borið traust til stjórnar, sem hlítir forystu hans. Fyrsta skilyrðið fyrir því, að jeg geti borið traust til stjórnar, er það, að jeg geti treyst orðum hennar. En það er nú svo um hæstv. forsrh. (J. M.), að hann er margreyndur að því, að orðum hans er ekki treystandi. Það hefir þráfaldlega komið fyrir, að hann hefir gefið þinginu rangar og villandi skýrslur um opinber mál. Jeg skal ekki segja, hvor ráðherranna, hæstv. forsætisráðherra (J. M.) eða danski ríkisráðherrann, hefir sagt satt í landhelgisgæslumálinu, en jeg treysti mjer ekki til að sýkna hæstv. forsrh. (J. M.), og það því síður, þar sem hann í gær svaraði ekki ákveðnara en svo, að hann kvaðst ekki hafa talað um ti1boð, heldur um það, að kostur væri á aukinni strandgæslu af Dana hálfu. Hann hlýtur þó að minnast þess, að hann sagði í umr. um landhelgisgæsluna hjer á þingi: „Ef jeg hefði beðið dönsku stjórnina, þá væri það alt annað mál“. Þar gaf hann í skyn, að hann hefði alls ekki leitað eftir tilboði eða beðið dönsku stjórnina. Nú segir danski ríkisráðherrann, að danska stjórnin hafi aðeins viljað verða við ósk íslensku stjórnarinnar. Hvernig hefir þá þessi ósk komið fram ?

Þá getur hæstv. forsrh. (J. M.) með engu móti sannfært mig um það, að hann hafi ekki vísvitandi gefið ranga skýrslu á fundi dansk-íslensku sambandsnefndarinnar um hug Íslendinga í strandvarnamálinu. Þar sagði hann, að Alþingi mundi ekkert frekar kjósa en að komast hjá kostnaði við strandvarnir. Þetta er í berri mótsögn við það, sem fram var komið á Alþingi, bæði 1919 og 1920. Jeg gæti komið með fleiri dæmi, sem sönnuðu, hversu ábyggilegur hæstv. forsrh. (J. M.) er í orðum sínum, en hirði ekki að gera það að þessu sinni. Jeg get gert það síðar, ef hæstv. forsrh. (J. M.) æskir þess. Væri farið lengra aftur í tímann, mundu fleiri kurl koma til grafar.

Hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) sagði í gær, meðal margs annars, sem jeg hygg að honum gangi treglega að rjettlæta, að stjórnin hefði í öllu farið eftir vilja undanfarandi síðustu þinga. Jeg skildi þetta svo, sem hann mundi þar eiga við innflutningsráðstafanirnar. Hafi hv. þm. (J. Þ.) meint þetta, þá er hægt að sanna honum, með prentuðum orðum hans sjálfs, að þetta er ekki rjett.

Í nefndaráliti samvinnunefndar viðskiftamálanna leggur nefndin til, að viðskiftahömlunum sje ljett af og numin úr gildi bráðabirgðalögin frá 15. apríl 1920, og viðurkennir hún með því, að það hafi verið stjórnin, en ekki Alþingi, sem kom viðskiftahöftunum á, þar eð hún telur, að þau byggist á tjeðum bráðabirgðalögum. Jeg heyri, að hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) segir, að jeg hafi lesið skakt í nefndarálitinu; þar standi, að viðskifta nefndin falli burtu, en ekki viðskiftahöftin. Þetta er rjett að vísu, en það breytir því, sem jeg sagði, í engu að efninu til, því væri það ekki tilætlunin að afljetta viðskiftahöftunum, þá væri viðskiftanefndin ekki afnumin, því hún var einmitt til þess sett að framkvæma þau og halda þeim uppi.

Jeg þykist nú vita, að hæstv. fjrh. (M. G.) segi, að í heimildarlögum frá 8. mars 1920 felist leyfi fyrir landsstjórnina að takmarka innflutning bæði ónauðsynlegs og ónauðsynlegs varnings, en það er ekki hægt að teygja orð laganna lengra en þau ná, enda er útgáfa bráðabirgðalaganna frá 15. apríl 1920 sönnun þess, að stjórnin hefir ekki talið, að þessi heimild fælist í lögunum frá 8. mars 1920.

Jeg hygg það satt hjá hv. þm. Dala. (B. J.), sem hann sagði í ræðu sinni, að stjórnin ætli nú að fara að taka upp þann sið að eta afkvæmi sín. Frv. um viðskiftahöftin munu þessi forlög ætluð. En sá „nýi siður“ getur ekki aukið traust mitt á stjórninni. Jeg skal í þessu sambandi minna á ræðu hæstv. fjrh. (M. G.), sem hann ljet fylgja fjárlagafrumvarpinu, þar sem hann sagðist eigi geta talað við þá menn, sem vildu afnema innflutningshöftin. Ná er fullyrt, að stjórnin ætli þó að fallast á að afnema þau. Hvað hefir þá breyst síðan hæstv. fjrh. (M. G.) hjelt því fram í þessari ræðu, að gjaldeyrisskorturinn stafaði af of miklum innflutningi, og eina ráðið til þess að bæta úr gjaldeyrisskortinum væri takmörkun á innflutningnum? Jeg held sannast að segja, að lítil breyting hafi orðið á aðstöðunni síðan þessi orð voru töluð. En hvað á þá að koma í staðinn? Jeg hefi nú aldrei haldið því fram, að sú leið gæti ekki komið til greina, að hefta innflutning, til þess að jafna viðskiftin við útlönd. Hitt hefi jeg sagt, að ef þá leið ætti að fara, yrði að taka málið alt öðrum tökum en gert hefir verið. Allar aðgerðir stjórnarinnar í þessu máli hafa verið helbert óvitafálm út í loftið, og mun viðskiftamálanefndinni nú hafa tekist að sannfæra stjórnina um það, og hún því ákveðið að láta höftin falla niður. En ekki er fjárkreppan úr sögunni, þó að viðskiftahöftin sjeu afnumin, því að hún stafar af því, að verð útfluttrar og aðfluttrar vöru helst ekki í hendur, og þann mismun verður að jafna á einhvern hátt. En sje innflutningshöftunum slept, sje jeg ekki, hvernig á að komast hjá því að taka lán.

Það gleður mig, ef hv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.) hefir ekki tapað á búi sínu síðastliðið ár; jeg hygg, að það sjeu ekki margir bændur, sem hafa þá sögu að segja, en ef svo hefði verið, að hann hefði nú tapað, þá vildi jeg spyrja hann að því, hvort hann mundi ekki heldur taka þann kostinn að fá sjer lán en að bregða búi, í von um það, að seinna kynni þó að rakna úr?

Eins er þessu varið með þjóðarbúskapinn. Sje hann rekinn með halla, safnast skuldir við útlönd, og þá kemur sú spurning, hvernig fara eigi með þennan halla, hvort heppilegra sje að láta hann standa á smáreikningum hjá ýmsum mönnum í ýmsum löndum, eða safna honum saman í eina heild, taka eitt stórt lán til að borga allar smáskuldirnar. Jeg skil nú varla, hvernig hv. þm. (Þór. J.) fær dulist, hvor leiðin muni heppilegri.

Jeg hefi hjer gengið út frá því, að hæstv. stjórn hafi fallist á þá tillögu viðskiftamálanefndarinnar að afnema innflutningshömlumar. En nefndin hefir ekki framfylgt málinu út í æsar, heldur slept aðalatriði þess, hvernig fara á að því að standa skil við erlenda skuldheimtumenn, og þetta er því frekar athugunarvert, þar sem stjórninni á þó að vera heimilað að takmarka yfirfærslur (póstávísanir), þrátt fyrir það, þótt innflutningurinn sje gefinn frjáls. Meðan innflutningurinn var takmarkaður var það ekki nema eðlilegt, að hömlur væru lagðar á yfirfærslur gjaldeyris, en eftir að innflutningshöftunum er af ljett sýnist mjer það blátt áfram ósæmilegt að takmarka yfirfærslu gjaldeyris.

Einhver hv. þm. sagði, að þeir, sem vildu afnema innflutningshöftin, vildu skilja við landið eins og stýrislaust fley í stórsjó. Nú vil jeg spyrja þennan hv. þm. og aðra hv. fylgismenn stjórnarinnar, hvort þeim sýnist eigi, að stjórnin hrekist í þessu máli líkt og stýrislaust fley í stórsjó. Leiðirnar út úr fjárkreppunni voru tvær. Annari hefir stjórnin fylgt, en hefir nú yfirgefið hana, án þess að taka hina upp. Það er nægilegt til þess, að jeg get eigi stutt þá tvo hæstv. ráðherra, sem hjer eiga einkum hlut að máli.

Því hefir verið haldið fram, að ósæmilegt hafi verið að koma fram með vantraustsyfirlýsingu, sökum þess, að ekki mundi verða hægt að mynda nýja stjórn. En þetta er fyrirsláttur einn og á engum rökum bygt. Það hefir ekki verið reynt síðan 1917 að mynda samfelda meiri hluta stjórn, því að síðan hefir sami maður ætíð flækst fyrir heilbrigðum aðgerðum þingsins þar að lútandi, en jeg fullyrði, að hve nær sem þingið hefir óbundnar hendur í þessu, þá takist því að mynda slíka meiri hluta stjórn. Þetta getur því eigi aftrað mjer frá því að greiða vantraustsyfirlýsingunni atkv. mitt.

Nú er hjer líka komin fram tillaga til traustsyfirlýsingar, og jeg get eigi varist því að segja það, að mjer þótti einkennilegur sá úlfaþytur, sem varð meðal fylgismanna stjórnarinnar, þegar hún kom fram. Maður hefði mátt halda, að þeim myndi ekki geta þótt um annað vænna, en í stað þess ráða þeir sjer tæplega fyrir reiði. Hví svo? Jeg beini þessari spurningu sjerstaklega að hv. 3. þm. Reykv.(J. Þ.), sem virtist sjerstaklega hneykslast á þessari trauststillögu. Hann ætti þó að fagna tillögunni manna mest, því jeg varð þess ekki var í ræðu hans, að hann fyndi blett nje hrukku á stjórninni.

Því hefir verið haldið fram, að traustsyfirlýsingin væri óþinglega fram borin. Jeg get engan veginn fallist á það. Hjer á aðeins að ganga úr skugga um það, hvort stjórnin nýtur trausts eða ekki. Það verður ekkert tillit tekið til þess, þó að einhverjum hv. þm. komi illa að þurfa að gera skýra grein fyrir afstöðu sinni til stjórnarinnar. En annaðhvort vilja þeir láta stjórnina fara með völdin áfram, og þá er það skylda þeirra að gjalda henni traustsatkvæði, því þeir hljóta þá að bera traust til hennar. Ef svo er ekki, þá eiga þeir að gera sitt til þess, að mynduð verði önnur stjórn, sem þeir geta treyst.

Hvað því viðvíkur, að traustsyfirlýsingin sje óþingleg vegna þess, að flutningsmaðurinn (Gunn. S.) ætli sjer að greiða atkv. á móti henni, þá er nú því til að svara, að hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) gerir sig sekan í líku velsæmisbroti, því jeg veit ekki betur en að hann beri hjer, ásamt öðrum, fram frv., sem hann ætlar sjer að greiða atkvæði á móti, að minsta kosti um ákvæði þess, sem einmitt hann átti fmmkvæði að. Nei, sannleikurinn er sá, að hin „rjettláta reiði“ stjórnarsinna út af traustsyfirlýsingunni er sprottin af því, að þeir vita, að stjórnin er í raun og veru í minni hluta, þ. e. nýtur alls ekki trausts þingsins. Þeir vita, að stjórnin hefir fyrirgert öllu trausti með framkomu sinni, og blygðast sín fyrir að taka opinberlega ábyrgð á henni.

Það var sagt í fyrra, að hæstv. forsætisráðherra (J. M.) hefði meiri hluta fylgi þá. En ætli það sje samt ekki full ástæða til að vita, hvernig þeim meiri hluta er nú varið? Ef sá meiri hluti er ekki lengur til, þá hlýtur það að stafa af því, að störf stjórnarinnar þykja ekki hafa snúist landinu til heilla síðasta árið, heldur til óheilla. Og því má það þá ekki koma fram í beinni atkvæðagreiðslu um traust eða vantraust?