17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í D-deild Alþingistíðinda. (3746)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Jón Auðunn Jónsson:

Herra forseti! Jeg óska eftir að fá leyfi til þess að leggja þá fyrirspurn fyrir hv. 1. þm. Ára. (E. E.), hvort honum muni eigi hafa orðið það á að taka skakka ræðu upp úr vasa sínum eða leggja út af skökkum taxta. Mjer fanst, að það hlyti að vera, að ræðan hefði annaðhvort verið önnur en sú, sem átti að flytja, eða að það hafi komið í hans hlutskifti, líkt og var um hv. þm. Dala. (B. J.), að hafa framsögu í máli, sem hann vildi ekki hafa framsögu í.

Ástæður mínar fyrir þessu eru þær, sem jeg skal nú greina. Hv. þm. (E. E.) vill slá því föstu sem stimpli á fjármálakreppuna, að hann sjálfur láni hengingarvíxla bændum austanfjalls. Hv. þm. (E. E.) verður að gæta þess, að hann stimplar ekki einungis sjálfan sig með þessum orðum, heldur líka Landsbankann og stjórn hans, og það að óverðskulduðu, því jeg veit eigi til, að stjórn bankans hafi lagt slíkt fyrir útibúin. Jeg hefi nú verið 16 ár í stjórn útibúsins á Ísafirði, og allan þann tíma hefir það aldrei verið lagt fyrir mig að veita landbúnaðinum víxillán, heldur annaðhvort sjálfskuldarábyrgðarlán eða lán gegn veði í fasteignum. Jeg hefi aldrei vitað landbúnaðarlán tíðkast með víxlum. Til landbúnaðar er lánað með alt öðrum kjörum, svo sem sjálfskuldarábyrgðarlán og með veðrjetti í jörðum og öðrum eignum. Þessa fjármálapólitík hv. þm. (E. E.) í útibúi hans austan fjalls má með engu móti skoða sem stimpil á Landsbankann.

Hv. þm. (E. E.) talaði um, að lánstraust landsins væri farið erlendis. Mjer þykja þessi ummæli því undarlegri, sem hv. þm. (E. E.) hlýtur að vera kunnugt um, að Landsbankinn hefir nú mjög nýlega tekið stórlán erlendis með aðstoð stjórnarinnar og á ábyrgð ríkissjóðs. Jeg veit ekki, hvar á að leita að ósæmilegum ummælum, ef þessi eiga ekki að teljast ósæmileg. Þótt hv. þm. (E. E.) vilji koma stjórninni fyrir kattarnef, þá má hann ekki gera það á þennan hátt. Slík ummæli veikja traust þings og þjóðar og þeirrar stofnunar, sem honum ber skylda til að halda hlífiskildi yfir.

Þá sagði hv. þm. (E. E.), að stjórnin væri skyld til að tryggja landinu lánstraust erlendis. Hvernig má það verða? Væntanlega skýrir hv. þm. (E. E.) það nánar.

Hann sló því föstu, að land og þjóð væri í niðurníðslu, og að stjórnin ætti sök á því. Það mætti segja í ýmsum tilfellum, að stjórn ætti sök á því, ef landið væri í niðurníðslu. En þá ætti Alþingi líka sök á því. En jeg skil ekki, hvernig á að kenna stjórninni um það, þó að þjóðin sje í niðurníðslu. Jeg skil ekki meininguna. Líklega á það að vera svo, að stjórnin „demoraliseri“ svo hugi manna. „Fysiskt“ getur hún ekki eyðilagt þjóðina, þótt hún fegin vildi.

Allir þeir hv. þm., sem hafa álasað stjórninni fyrir að hafa ekki tekið lán, hv. 1. þm. Árn. E. E.), hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.), hv. þm. Dala. (B. J.) og hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.), vilja láta ríkið taka lán til þess að lána aftur Íslandsbanka. (B. J.: Jeg sagði bönkunum). Stjórnin hefir hjálpað Landsbankanum til lántöku. (B. J.: Ný upplýsing). Hæstv. fjrh. (M. G.) hefir gefið þá upplýsingu, og því ekki hægt að bera á móti því. Vildu ekki hv. þm. gera grein fyrir því, hvernig á að hjálpa Íslandsbanka? Á hinn bóginn er það tilefnislaus ásökun á stjórnina, að hún hafi ekki tekið lán handa bankanum, meðan bankinn gat ekki gefið neina viðunandi tryggingu, og bankinn hafði einu sinni ekki beðið um það. Nú lýsti bankastjórn Íslandsbanka yfir því við hæstv. fjrh. (M. G.) í Kaupmannahöfn í haust er leið, að hún byggist ekki við að þurfa hjálp landsstjórnarinnar til lántöku. Ef á að saka stjórnina fyrir að hafa ekki tekið lán, þá verður það að byggjast á ummælum bankastjórnarinnar. En það er kunnugt, að sá bankastjóri, sem mestu ræður í Íslandsbanka, og Kaaber, bankastjóri Landsbankans, voru sammála um það í haust er leið, að úr mundi rakna um áramótin. Þetta hefir þó bragðist. Mikið af framleiðslunni er óselt enn, verð hefir lækkað á útlenda markaðinum og endurgjöldin ekki verið greidd enn.

Orð hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) og hv. 1. þm. Árn. (E. E.), um að bankarnir geti ekki annast greiðslur sínar erlendis, eru mjög óviðeigandi, sjerstaklega um Landsbankann. Þetta má ekki taka óskorað. Landsbankinn hefir altaf getað hjálpað, þar sem ákvæðin um viðskiftahömlurnar hafa ekki verið í vegi. Það er sjerstaklega undarlegt að heyra þetta af munni hv. 1. þm. Árn. (E. E.), sem veit vel sjálfur, að Landsbankinn gæti lánað öllum stórum viðskiftamönnum sínum til atvinnurekstrar. Að hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) slær þessu fram, er miklu fyrirgefanlegra honum en 1. þm. Árn. (E. E.), sem veit, að Landsbankinn hefir tjáð sig færan til að hjálpa sínum viðskiftamönnum.

Það hefir verið mikið talað um lán til atvinnurekstrar. Jeg get vel hugsað, að sem stendur eigi Íslandsbanki erfitt með að lána sínum viðskiftamönnum til atvinnurekstrar. Þetta orð, atvinnurekstur, er líka mjög teygjanlegt. Sumir hv. þm. virðast hafa tilhneigingu til að teygja það út yfir allar hugsanlegar athafnir manna. Það er ekki einasta notað um landbúnað og sjávarútveg, eins og rjett er, heldur og um allskonar iðnir. Það er ekki nóg, að nægilegt fje sje fyrir hendi; það verður að verja því skynsamlega. Ótakmarkað rekstrarfje er ekki viðreisn atvinnuveganna. Hún verður að koma innan að, í bættu skipulagi á rekstri og öllu fyrirkomulagi. Ef hingað væri fengið stórfje frá útlöndum, mundi það verða herfilega misbrúkað undir þeim kringumstæðum, sem nú eru. Þegar vel gengur, hugsa atvinnurekendur um ýmislegt til bóta atvinnuvegi sínum, en á þrengingartímunum hugsa þeir um að spara og draga saman seglin, til þess að minka rekstrarkostnaðinn. Það má vel vera, að hv. 1. þm. Árn. (E. E.) takist að kippa öllu í lag, ef hann kemst í stjórnina, en ekki hefi jeg mikla trú á því. Hann auðkendi mikla menn með því, hvað þeir hefðu getað og viljað. Eftir að hafa lesið hina 11 paragraffa hv. þm. (E. E.), sem hann smurði upp, þegar hann bauð sig fram til þingsetu, þá hugsaði jeg, að hann ætlaði sjer að verða mikilmenni með því að lofa miklu. En jeg ætla að bíða með að lofa hann sem mikilmenni þangað til hann hefir efnt loforðin þau.

Þá eru það nokkur orð út af dagskrá hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.). Hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) sagði, að hún væri fullkomlega þinglega og sæmilega fram borin. Jeg vil spyrja hv. þm. (Jak. M.), hvort honum þætti það sæmilegt, ef stjórnin hefði beiðst trausts og vissi, eftir að málið væri komið á dagskrá, að hún gæti ekki fengið það, en vissi hins vegar, að vantraust mundi felt, að einn af fylgismönnum hennar stæði þá upp og bæri fram vantraustsyfirlýsingu, en lýsti því jafnframt, að hann greiddi atkv. á móti henni? (Jak. M.: Það er heimilt). Já, heimilt, en ekki sæmilegt.