17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í D-deild Alþingistíðinda. (3750)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Jón Baldvinsson:

Það mun þykja hlýða að gera grein fyrir atkv. sínu, í ekki vandaminna máli en því, sem hjer liggur fyrir, hvort menn vilja lýsa trausti eða vantrausti á þeirri stjórn, sem með völdin fer í landinu. Stjórnin er, eins og kunnugt er, aðeins ársgömul, en samsteypustjórnarfyrirkomulagið er síðan í ársbyrjun 1917. Þá voru flokkarnir svo lamaðir, að þingið sá sjer ekki annað fært en að búa til þessa þríhöfðuðu stjórn.

Þessi stjórn, sem ræður manna hafa nú snúist um í 2 daga, er mynduð úr öllum flokksbrotum þingsins, sem á síðasta þingi tókst að koma upp dálitlum meiri hluta í bili. Það geta því varla hugsast ósamstæðari öfl en þau, sem þessi stjórn bygðist á. Og þetta er aðalmeinið.

Hæstv. forsrh. (J. M.) sagði, að í nágrannalöndunum væru samskonar samsteypustjórnir eins og hjer. En þetta er ekki rjett.

Stjórnirnar þar er myndaðar af heilsteyptum flokkum, þar sem menn skipast um ákveðnar stefnur, og þessir flokkar bera svo ábyrgð á stjórninni.

En hjer er alt öðru máli að gegna. Engir fastir og ákveðnir flokkar standa á bak við þessa stjórn. Og þegar hún var mynduð á þinginu í fyrra, töldust stuðningsmenn hennar vera úr flestum eða öllum flokkum eða flokksbrotum á þinginu, þó að aðrir í þeim sömu flokkum vildu hvorki heyra hana nje sjá. — Þannig er talið, að stjórnin hafi verið mynduð með stuðningi 1 manns úr sjálfstæðisflokknum, líklega óskiftum stuðningi heimastjórnarflokksins sáluga, — því hann lagði til tvo ráðherrana, — nokkrum hluta Langsum-banda- lagsins, — þaðan er hæstv. fjrh. (M. G.) kominn í stjórnina, — og loks með stuðningi eða hlutleysi framsóknarflokksins, eða meginþorra manna úr honum.

Sá meiri hluti, sem á þennan hátt er myndaður um núverandi stjórn, með allsendis óákveðnum stefnum í stórmálum þjóðarinnar, getur ekki verið haldgóður.

Stjórnin hefir ekki haft tækifæri til að leggja mál fyrir þingið fyr en nú, en af þeim má einnig sjá, hversu alt ráð stjórnarinnar er á reiki og hversu fjarskyldar stefnur rekast á í þessum málum, og má nefna þess mörg dæmi.

Hæstv. fjrh. (M. G.) leggur nú fyrir þingið ýms frv. um tekjuauka. Meðal þeirra er frv. um einkasölu ríkisins á tóbaki — og áfengi. Hjer er mál á ferðinni, sem ætla mætti að dregið gæti að sjer fylgi þeirra manna, sem þeirri stefnu fylgja, að ríkið afli sjer tekna með verslunarrekstri. Meðal þeirra manna er jeg, og gæti jeg því fylgt hæstv. stjórn að miklu leyti um þetta mál. En svo fer að vandast málið, því samhliða þessu frv. leggur hæstv. fjrh. (M. G.) fyrir þingið skattafrv., sem gengur svo nærri þeim, sem litlar tekjur hafa, að fádæmum sætir. Skattalögin gömlu frá 1877, sem nú gilda, mega sannarlega hátíð heita hjá þessu frv.; þar er ekki gert ráð fyrir, að skattur sje tekinn af lægri tekjum en 1000 kr., og var þó verðgildi peninga margfalt hærra þá en nú. Enda mun áætlunin þá hafa verið sú, að verkalýður allur og fátækara fólkið slyppi við skattgreiðslu. En í þessu frv. er skift um, og eftir því á að heimta skatt af 500 kr. tekjum, og mega allir sjá, hve ranglátt þetta er gagnvart fátækum og tekjulitlum verkalýð landsins. Þeir, sem hafa háar tekjur, sleppa aftur á móti ágætlega eftir frv.; á þeim á að lækka frá því, sem nú er. Þetta frv. er því há-„kapitalistiskt“, og menn freistast til að ímynda sjer, að hæstv. stjórn hefði með þessum tveim frv. haft þá tvo flokka fyrir augum, annars vegar socialista og þá aðra, sem ríkisverslun fylgja, en hins vegar með skattafrv. kapitalistana. En tollfrv. hæstv. fjrh. (M. G.) mætti ætla að væri handa hinum frjálslyndari mönnum, sem standa á milli þessara flokka. En eftir þessu virðist svo, sem hæstv. fjrh. (M. G.) hafi ætlað sjer að hafa eitthvað handa öllum.

Hæstv. forsrh. (J. M.) hefir lagt fyrir þingið frv. til laga um einkasölu á lyfjum. Það gæti á sama hátt verið gert til þess að draga að sjer fylgi þeirra, sem ríkisrekstri fylgja. En svo er nú eftir að vita, hvort þeir ætla sjer að standa við þessi frv., eða hvort þeir ætla að falla frá þeim, ef andblástur verður gegn þeim í þinginu.

Þá er það hæstv. atvinnumálaráðherra (P. J.). Hann hefir lagt fram í hv. efri deild frv. um einkasölu á kornvöru. Þó að jeg sje nú ekki samþykkur ýmsum atriðum í frv. þessu, þá get jeg vel felt mig við stefnu þá, sem kemur fram í frv. En jafnframt þessu hefir hæstv. sami ráðh. (P. J.) borið fram í neðri deild Íslandsbankafrumvarpið alræmda, frv. um seðlaútgáfurjett og fleira. Og það mál er fram borið til þess að efla og festa í landinu þessa gróðastofnun einstakra manna, þrátt fyrir það, þótt sú stofnun hefði langsamlega brotið af sjer allan rjett til hlunninda frá þessari þjóð. Hefi jeg áður minst á það hjer í þinginu, að þessi bankastofnun hefði reynst allóþörf landinu. Og jeg sagði þá einnig, að það væri ekkert sjereinkenni fyrir þessa stjórn að veita bankanum ívilnanir; það hafa fleiri stjórnir, illu heilli, gert á undan henni. Þó hefir engin stjórn, fyr en þessi, beinlínis leyft eða liðið bankanum að fótumtroða lög landsins. Enda hefir aldrei komið jafnberlega í ljós og nú á síðastliðnu ári, hvílíkur háskagripur þessi stofnun getur verið landi og þjóð. Landinu var búinn af því hinn mesti fjárhagsvoði, þegar bankinn gat ekki eða vildi ekki yfirfæra peninga fyrir það, eins og honum þó bar lagaskylda til. Og þegar hann loks þóttist sýna lit á því, þá reyndist það tóm blekking. Landið fjekk hjá bankanum steina fyrir brauð, ónýtt pappírsblað fyrir fje. Hvað mundi vera sagt um einstaka menn, ef þeir gæfu út ávísanir, er ekki væru greiddar? En slíkt festir ekki á Íslandsbanka, að dómi stjórnarinnar, þótt hann geri sig sekan í þessu. Og hún mun vera einróma um það að vernda Íslandsbanka, eins og vel hefir mátt heyra af ræðum þeirra hæstv. fjrh. (M. G.) og hæstv. atvrh. (P. J.).

Hæstv. fjrh. (M. G.) sagði, að það væri ekki hægt að heimta af bankanum meira en hann gæti. Jeg vil nú skjóta því til hv. deildarmanna, hvort þeir viti til þess, að lögfræðingunum sje það nægileg ástæða til að falla frá kröfum sínum, þá er menn standa ekki í skilum, að þeir segist ekki geta borgað? Jeg held ekki. Jeg held, að þá sje gengið að.

Íslandsbanki var skuldbundinn til þess, að viðlögðum missi seðlaútgáfurjettarins, að inna af hendi yfirfærslur á peningum til útlanda. Úr því nú bankinn ekki fullnægði þessari skuldbindingu, þá gat stjórnin gengið að honum, svift hann seðlaútgáfurjettinum og komið honum undir yfirráð landsins, ef hún hefði viljað.

Jeg þykist vel skilja það, hvers vegna bankastjóri Íslandsbanka rjeð hæstv. fjrh. (M. G.) frá að taka lán handa landinu. Hann gat vel búist við því, að fjeð yrði notað til þess að leggja bankann undir landið.

Og ef stjórnin hefði gert slíkar ráðstafanir nógu snemma, í því skyni að ná bankanum undir sig, hefði það ef til vill getað gengið slysalítið og hljóðalaust.

Og ef landið rjeði bankanum núna, er jeg viss um, að atvinnuvegirnir væru ekki í annari eins kreppu og nú virðist vera.

Það fyrsta, sem hingað hefir frjest af tilraunum erlendra banka til að ljetta dýrtíðinni, er það, að þeir hafi gengið að spekúlöntunum, svo þeir urðu að setja niður braskvörurnar. Og verðfall á vefnaðarvöru og fleiri vörutegundum er að mestu leyti sagt bönkunum að þakka og knúð fram á þennan hátt.

Hjer fer Íslandsbanki, brjóstmylkingur stjórnarinnar, nokkuð öðruvísi að. Hann byrjar á því að gera kröfu til þess, að fátækur verkalýður setji niður kaup sitt. Hann hefir neitað atvinnurekendunum um rekstrarfje, nema því aðeins, að þeir lækkuðu kaupið hjá verkalýðnum, þrátt fyrir það, að slíkt sje bæði ósanngjarnt og raunar ómögulegt, því kaup verkamanna er nú fremur of lágt en of hátt, þegar tillit er tekið til þess, að lítil verðlækkun hefir enn átt sjer stað og atvinnuleysi sverfur að. Samt á að taka fje af fátækasta hluta þjóðarinnar, og útlendi bankinn ríður þar á vaðið. Ekkert slíkt hefir komið fram frá Landsbankanum. Hann hefir ekki, mjer vitanlega, neitað um rekstrarfje til útgerðarinnar. Íslandsbanki á því einn heiðurinn!

Það er ekki gott að geta sjer til um það, hvaða stefnu stjórnin muni taka í málum þeim, sem fyrir liggja. Ekki ólíklegt, að hún hallist eftir því, sem vindurinn blæs. Og þótt jeg nú fylgi sumum þeim málum, sem stjórnin ber fram, þá þori jeg þó ekki að treysta henni í meðferð þeirra, þar sem hún ber fram jafnsundurleit frumvörp og raun er á orðin, og það því síður, sem dagskrá er fram komin frá samþingismanni mínum, hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), um að vísa vantraustinu frá. Hefir sá hv. þm. (J. Þ.), er þá dagskrá bar fram, líklega von um, að hann fái stjórnina síðar til þess að fara að sínum ráðum, eftir þann ágæta stuðning, sem hann hefir með dagskránni veitt stjórninni. En ef svo er, að hann hafi einhverja von í þessa átt, þá er jeg ekki vongóður um afdrif minna mála.

Þótt þessi stjórn þykist halda fast við þetta eða hitt, þá er þó svo, þegar til alvörunnar kemur, að hún „sættir“ sig venjulega við það, sem meiri hlutinn samþykkir, þótt það sje þvert á móti því, sem hún hafði áður haldið fram. Slíkri stjórn er ómögulegt að mynda um sig fastan flokk, áhugamálin eru engin, ekkert annað en losaralegt fálm út í loftið. Og það sem verra er, meðan slík stjórn er uppi í landinu er ekki hægt að mynda neina flokka eða hreinar línur, því starf hennar og styrkleikur er í því fólgið að koma í veg fyrir slíkt. Og málin mótast ósjálfrátt af þeim glundroða, sem ríkir í stjórninni. Það er reynt að teygja sig svo langt, sem kostur er á, til þess að hafa eitthvað handa öllum, og reynt að sameina hinar sundurleitustu stefnur og skoðanir, en útkoman verður sú, að allir eru óánægðir. Það þarf að hreinsa þessa óhollustu úr hinu pólitíska lífi og mynda hreinar línur. Að því miðar till. hv. þm. Dala. (B. J.), og mun jeg því greiða henni atkvæði.

Út af því, sem hv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.) sagði, að þeir, sem töluðu með vantrausti á stjórnina, mundu vera í hinum nýja flokki, sem ætlaði að mynda nýja stjórn, þá vildi jeg lýsa yfir því, að jeg er ekki í þessum flokki, ef hann er til, og hefi engin samtök gert um þessa till. Hefi aðeins tekið afstöðu til hennar, eins og hvers annars máls, sem til atkvæða kemur í þinginu.