17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í D-deild Alþingistíðinda. (3762)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg vil fyrst reyna að svara fyrirspurnum hv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.), þótt jeg búist ekki við að geta gert það svo, að honum þyki það fullgild svör. Hann spurði, hvað lánin væru mikil. Jeg vil ekki svara þessu yfir alla, því bankastjórn Landsbankans hefir látið í ljós við landsstjórnina, að hún teldi æskilegast, að bankamálin væru aðeins í einrúmi gerð kunn þingmönnum.
Þá spurði hv. þm. (Ó. P.), hvort fjeð kæmi báðum bönkunum að haldi. Stjórnin getur vitanlega ekki sagt um, hvernig Landsbankinn fer með fjeð, en jeg býst við, að hann muni nota það handa sínum viðskiftamönnum. Jeg hefi skýrt frá því í bankamálanefndinni, að hinn síðarnefndi banki hefði von um lán hjá erlendum samböndum sínum, svo framarlega sem bankamálin leysist viðunanlega hjer á þingi.
Hann spyr, hvort stjórnin muni gera sitt ítrasta, ef þörf krefur, til að bjarga úr kreppunni. Það er mjög óhentugur tími nú til þess að gefa loforð, því það má búast við, að álitið verði, að jeg sje að reyna að veiða með því atkv. En jeg get sagt, að jeg álít, að sú stjórn, sem ekki gerði það sem auðið er í því efni, vanrækti skyldu sína, og jeg vona, að hv. þm. álíti ekki, að jeg geri það viljandi.
Jeg skýrði frá því hjer áður, að jeg mundi ekki greiða atkv. En jeg sagði það ekki vegna þess, að jeg áliti það óheimilt, en það er óþarft, því það liggur í augum uppi, hvoru megin ráðherrarnir eru, þegar greitt er atkv. um vantraust til þeirra, og það er því alveg óhætt að telja atkv. þeirra á móti, hvort sem þeir segja nei eða ekki.
Að lokum fáein orð til hv. 1. þm. Árn. (E. E.). Það er alveg rjett, að útibúið hans hefir tapað, eins og jeg tók fram áður. Það stoðar ekkert í þessu sambandi að vera að tala um fjármálavit mitt, og sýnir bara augljósar þann heilabögling, sem honum er eiginlegur. Húsið er tilfært fullu verði. Að útibúið hafi orðið að greiða vexti er auðvitað mál, en þar á móti kemur húsaleigan, sem það losnar við að greiða.
Þessi hv. þm. (E. E.) var miklu rólegri nú en áður, og fanst það á, að ræða mín hafði haft áhrif, svipað og vatn, sem helt er yfir reiðan hana, enda var það tilætlunin. Hann sagði, að tapið á útibúinu á Selfossi væri góður mælikvarði á fjármálavit mitt. En það er mælikvarði á fjármálavit hans, þar sem hann er útibússtjóri þar, en ekki jeg. Skilja þetta allir nema hann. Verður að virða honum það til vorkunnar, og skal jeg ekki virða hann frekar svars í þessu máli, enda vita allir, að hann er kolamokari á kafbátnum.